Vilborg pólfari með fyrirlestur í FNV - uppfært

Vilborg Arna Gissurardóttir sem vann það mikla afrek að ná á suðurpólinn fyrr í vetur ein síns liðs ætlar að heimsækja fjölbrautaskólanemendur Sauðárkróki á morgun. Verður hún með fyrirlestur um leiðangurinn í fyrirlestrarsal Fjölbrautarskólans annað kvöld klukkan 20:00.

Allir eru velkomnir að hlýða á fróðlegt erindi Vilborgar. Aðgangseyrir er 500 krónur fyrir alla. Rétt er að taka fram að hægt er að greiða með greiðslukortum.

Hægt var að fylgjast með ferð Vilborgar á Lífsspor.is og þar er margt fróðlegt að sjá. Sjá HÉR. 

Fleiri fréttir