Vildarvinakort fótboltadeildar Tindastóls
Knattspyrnudeild Tindastóls er að fara í gang með Vildarvinakort en vildarvinir munu fá frítt á alla heimaleiki Tindastóls í sumar, bæði leiki karla- og kvennaliðs Tindastóls, jafnframt fá þeir frítt kaffi á leikjunum.
Vildarvinur greiðir 1.500 kr. á mánuði til knattspyrnudeildar Tindastóls, samtals 18.000 fyrir árið. „Fyrsta greiðsla verður í janúar 2012 og síðan verður Vildarvinur að...stöðva greiðsluna sjálfur í desember 2012 ef hann vill ekki halda henni áfram 2012 og svo koll af kolli. Að sjálfsögðu geta Vildarvinir óskað eftir því að greiða hærra upphæð,“ segir á heimasíðu Tindastóls.
M.fl. karla leikur 11 heimaleiki næsta sumar og stelpurnar leika væntanlega um 7 heimaleiki. Miðaverð í sumar verður 1.000 kr. á hvern leik og því er miðaverð á alla heimleiki 18.000 kr. samtals. Það má því segja að Vildarvinakortið sé einskonar árskort.
Leikmenn í meistaraflokki Tindastóls hafa umsjón með sölu Vildarvinakortanna og því hægt að nálgast þau hjá þeim eða senda póst á netfangið fotbolti@tindastoll.is.