Vilhjálmur Árnason í framboðsgírnum

Skagfirðingurinn Vilhjálmur Árnason hefur ákveðið að gefa kost á sér í 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Vilhjálmur er varabæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Grindavík og var formaður skipulags- og umhverfisnefndar Grindavíkur.

-Ég hef unnið innan Sjálfstæðisflokksins frá því ég man eftir mér og hef verið kjörinn í ýmis trúnaðarstörf fyrir flokkinn. Í síðustu kosningum skipaði ég 6. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og er kjörinn varaþingmaður, segir Vilhjálmur sem tekið hefur virkan þátt í ýmis konar félagsstarfi frá unga aldri. -Til að mynda var ég formaður nemendafélags Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og sat í 4 ár í stjórn Landssambands lögreglumanna. Vilhjálmur fellur ekki langt frá sjálfstæðiseikinni en hann er bróðursonur Vilhjálms Egilssonar sem sat lengi á Alþingi fyrir Norðvesturkjördæmi.

Fleiri fréttir