Vilhjálmur Egilsson ráðinn rektor Háskólans á Bifröst

Skagfirðingurinn Vilhjálmur Egilsson hefur verið ráðinn rektor Háskólans á Bifröst frá 1. júlí næstkomandi. Vilhjálmur hefur verið framkvæmdastjóri SA frá 15. mars 2006 eða í 7 ár sem hefur verið viðburðaríkur tími í sögu samtakanna og íslensks atvinnulífs, segir á heimasíðu skólans.

Vilhjálmur er með doktorspróf í hagfræði frá University of Southern California í Los Angeles.  Hann var ráðuneytisstjóri í Sjávarútvegsráðuneytinu 2004-2006 og sat í Framkvæmdastjórn AGS á árinu 2003.  Áður var Vilhjálmur framkvæmdastjóri Verslunarráðs Íslands og alþingismaður fyrir Norðurland vestra. Vilhjálmur þekkir vel til reksturs Háskólans á Bifröst, en SA er einn bakhjarla hans.

Á Bifröst.is segir að með ráðningu Vilhjálms fær skólinn til liðs við sig öflugan leiðtoga með yfirgripsmikla þekkingu á íslensku atvinnulífi og efnahagsmálum og væntir mikils af starfi Vilhjálms sem rektors Háskólans á Bifröst.

Fleiri fréttir