Vilja skemmtilegri Litlaskóg

6.bekkur Árskóla fóru á dögunum í skólaferðalag til Akureyrar og komu við á hinum ýmsu stöðum í leiðinni. Það sem stóð upp úr í þeirri ferð var Kjarnaskógur. En þar má finna hin ýmsu leiktæki sem skemmtilegt er að leika sér í. Fannst krökkunum frekar leiðinlegt að þurfa að fara svona langt til að komast í svona sumarskemmtun. Ákváðu því krakkarnir í samvinnu við kennara sína að fara í hugmyndavinnu og hönnun leiksvæðis í Litlaskógi. Fjölmargar hugmyndir litu dagsins ljós, s.s. aparóla, vaðpollur, klifurveggur og vatnsbyssugarður.

Eftir að hugmyndavinnu lauk tók við tæknilegar útfærslur eins og t.d. mælingar og teikningar. Í gær fóru svo allir krakkarnir niður í Ráðhús og afhentu starfsfólki teikningarnar ásamt bréfi, þar sem þau hvetja sveitastjórn að koma þessum hugmyndum í framkvæmd. Margeir Friðriksson og Herdís Sæmundardóttir tóku hugmyndunum fagnandi og hétu því að koma þeim áleiðis. Útsendarar FeykirTV voru á staðnum og myndaði m.a. hugmyndirnar.

http://www.youtube.com/watch?v=zX6UazmsKrQ

Fleiri fréttir