Viltu morgunmatinn í rúmið á sunnudaginn?
Meistaraflokkur og unglingaráð ætla í sameiningu að efna til fjáröflunar í samvinnu við Sauðárkróksbakarí, með því að bjóða fólki upp á að fá morgunverð sendan heim á sunnudaginn.
Í boði eru þrennskonar pakkar; Bakkarinn, Framherjinn og Centerinn.
Verð:
Bakkarinn: 2500,- kr.
Framherjinn: 4000,- kr.
Centerinn: 5500,- kr.
Tekið er á móti pöntunum í síma 455-5000 í Sauðárkróksbakaríi fyrir kl. 14:00 á laugardag, greiðist með kreditkorti við pöntun.
„Við mætum með morgunmatinn til þín milli 9 og 11 (þú velur tímann). Verði ykkur að góðu kæru bæjarbúar og takk fyrir stuðninginn við körfuknattleiksdeildina,“ segir á heimasíðu Tindastóls.
Hér eru vísur sem ortar hafa verið við tilefnið.
Eftir súrmat allan, hákarlinn og sviðin,
við sjússana og dansinn verður iðinn,
þú seint ferð í ból,
en senn aftur á ról
og setja þarf þá jafnvægi á kviðinn.
Á sætabrauðið kalla mun þinn kviður
nú „Körfuna“ í leiðinni þú styður
þín heilsa verður bætt
ef brauð þú velur sætt.
Bakarinn tekur pantanirnar niður.