Vinadagur á morgun

Vinadagur verður haldinn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki á morgun fimmtudaginn 6. september frá kl. 9:30-12. Öll grunnskólabörn í Skagafirði ásamt skólahópum leikskólanna mæta á vinadaginn til að skemmta sér saman eins og sannir vinir gera með söng, leik og dansi.

Vinadagurinn er haldinn í tengslum við vinaverkefnið í Skagafirði en það hefur hlotið mikla athygli og hlaut m.a. Foreldraverðlaun Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, á síðasta ári. Sérstaka athygli hefur vakið hve breið þátttaka er í vinaverkefninu og hve mikil samstaða hefur náðst um það, sem er einmitt lykillinn að árangri þess.

Vinaverkefnið er samstarfsverkefni leik-, grunn-, og framhaldsskóla í Skagafirði, frístundadeildar Sveitarfélagsins Skagafjarðar, íþróttahreyfingarinnar og foreldrasamtaka í Skagafirði. Höfuðmarkmið verkefnisins er að ekkert barn í Skagafirði upplifi vinalausa æsku og er m.a. unnið að því með því að:

·         Stuðla að því að í öllum skólum og á öllum stigum verði unnið að forvarnarverkefnum um vináttu.

·         Samræma vinnu/verkefni sem unnin eru í skólunum á þessu sviði og veita jafningjafræðslu/upplýsingar á milli skólastiga.

·         Auka fræðslu til foreldra og þeirra sem koma að skipulögðu starfi með börnum og unglingum um samskipti og vináttu.

·         Efla félagstengsl barna og unglinga með aðstoð foreldra, t.d. í samvinnu við skólana, frístundadeildina, íþróttafélögin o.fl.

·         Nýta viðbragðsáætlun þar sem þörf er á.

Sjá nánar um vinaverkefnið HÉR

Fleiri fréttir