Vinakveðjur berast víða í dag

Fjölmargir gestir atvinnulífssýningarinnar Lífsins gæði og gleði áttu möguleika á að kynna sér Vinaverkefnið og Fléttuna. Þar sögðu Selma Barðdal, stjórnandi Vinaverkefnisins, og Sigríður Arndís Jóhannsdóttir, forstöðukona Húss frítímans, gestum frá hlutverki verkefnanna en einnig stóð til boða að senda vinakveðjur hvert á land sem er, og jafnvel út fyrir landsteinanna ef því er að skipta.

 „Við vildum kynna verkefnin á skemmtilegan og jákvæðan máta,“ segir Sigríður í samtali við Feyki. Hugmyndina segir hún hafa vaknað þegar þær voru að undirbúa básinn fyrir sýninguna.

Ég var nýbúin að fá þakkarkort frá Barnamenningarhátíð og á hugmyndin rætur sínar þaðan – að bjóða fólki að senda vinum og vandamönnum vinakveðju. Um leið myndum við kynna verkefnið og sýna landsmönnum hve einstakur og flottur Skagafjörður er,“ útskýrir Sigríður en kortið var skreytt með fallegri mynd, ásamt lógóum verkefnanna.

Bæði verkefnin hafa nú þegar vakið athygli og verið verðlaunuð fyrir gott framtak. Þess má geta að Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra var stödd á Sauðárkróki í gær til að kynna sér Vinaverkefnið, en það hefur það að leiðarljósi að ekkert barn í Skagafirði upplifi vinalausa æsku.

Hlutverk Fléttunnar er að efla nærþjónustu fyrir langveik börn og börn með ADHD/ADD í Skagafirði, með áherslu á fræðslu og stuðning fyrir foreldra og starfsfólk sem sinnir þeim börnunum. Þar starfar fimm manna sértækur hópur sem er reiðubúinn að hjálpa til og grípa inni í ef þörf krefur, sem Sigríður segir vera afar sérstakt í ljósi þess að hér sé ekki um félagsþjónustu að ræða.

Á atvinnulífssýningunni fengum við mikið af ungu barnafólki til okkar sem hreifst af verkefnunum en þar hafði aðkomufólk einnig orð á því hve vel væri haldið um börnin okkar og fannst mikið til þess koma,“ útskýrir Sigríður.

Glaðningur inn um bréflúguna

Á sýningunni skrifuðu um 350 manns vinakveðjur og að sögn Sigríðar var þar fullorðið fólk í miklum meirihluta en kom það þeim nokkuð á óvart. „Þó nokkuð mörg börn sendu líka vinakveðjur en við þurftum svolítið að útskýra fyrir þeim út á hvað þetta gengur og þýðingu þess að senda póstkort. Börn eru náttúrulega ekki vön því nú orðið,“ segir hún.

Þarna sköpuðust einnig skemmtilegar umræður og fólk rifjaði upp hve skemmtilegt það hafði verið að fá póstkort og hve langt síðan þau fengu kort síðast,“ segir Sigríður.

Sigríður og Selma fóru með vinakveðjurnar á pósthúsið í gær og getur því hver sem er átt von á skemmtilegum glaðning inn um bréflúguna í dag.

Nokkrar mömmur í Skagafirði geta átt von á kortum frá unglingsstrákum sínum og jafnvel margar ömmur og afar líka,“ segir hún. „Við erum mjög spenntar yfir þessu og okkur finnst afar skemmtileg tilhugsun hve mikið af þessum kortum eiga kannski eftir að enda uppi á ísskáp eða á veggjum fólks víða um land,“ segir Sigríður í lokin.

Fleiri fréttir