Vinnuverndar- og réttindanámskeið fyrir bændur

Þann 12. nóvember er fyrirhugað að efna til námskeiðs í Skagafirði sem veitir bókleg réttindi til að stjórna dráttarvélum í réttindaflokki (I) og lyfturum (J). Námskeiðið er hefðbundið vinnuvélanámskeið en er aðlagað að bændum.

Sérstaklega verður fjallað um gerð áætlunar um öryggi og heilbrigði (áhættumat starfa) á vinnustað og gerð æfing í því. Lagðir verða fram gátlistar fyrir bændur til að gera áhættumat. Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum, myndum, myndböndum og verkefnum. Leiðbeinendur eru starfsmenn fræðsludeildar- og vinnuvéladeildar Vinnueftirlitsins. Námskeiðið er á vegum Endurmenntunar LbhÍ. Á heimasíðunni http://www.lbhi.is/pages/1710 er að finna upplýsingar um námskeiðið.

Fleiri fréttir