Vorboðar mættir
Lóan er oft kölluð vorboðinn ljúfi enda stutt í sumarið þegar hún lætur sjá sig. Aðrir fuglar geta líka kallast vorboðar og er álftin ein af þeim. Marinó Þórisson í Varmahlíð varð var við þessa ljúfu vorboða og festi á mynd.
Myndin er tekin í Varmahlíð niður undir Víðimel af vorboðanum sem lét vita af komu sinni með kvaki og vængjaþyt rétt uppúr klukkan fjögur á föstudaginn 22. febrúar sl.
Á Wikipedia segir að íslenskar álftir dveljist flestar á Bretlandseyjum yfir vetrarmánuðina en kringum tíundi hluti hefur vetursetu á Íslandi aðallega á Suður-og Suðvesturlandi og Mývatni. Á Reykjavíkurtjörn eru einnig venjulega nokkrir tugir fugla. Álftin er með fyrstu farfuglum, þær fyrstu sjást yfirleitt á Suðausturlandi í byrjun mars. Talning álfta fer fram á Bretlandseyjum og stofnmat árið 2005 sýndi að stofninn hafði stækkað úr um 12.000 fuglar árið 1980 í um 25.000 fugla 2005. Mest eru þetta geldfuglar en talið er að um 2.000 pör, eða 4.000 fuglar verpi hér á landi á hverju ári.