World Snow Day um helgina
World Snow Day er verkefni sem skíðasvæðin taka þátt í til að hvetja börn til skíðaiðkunar sér til gamans og heilsubótar. Í tilefni dagsins verður frítt í lyftuna nk. sunnudag 20. janúar fyrir þá sem eru yngri en 18 ára. Þá verður 50% afsláttur á skíðum og brettum fyrir þennan aldurshóp í leigunni en þátttakendur þurfa lykilkort til að fá aðgang að lyftunni.
Sömu helgi verður einnig svokölluð skiptihelgi en þá geta þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Tindastóll, Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði og Hlíðarfjalli skíðað að vild á svæðunum um næstu helgi 19. og 20. jan. Eina sem fólk þarf að gera er að sína vetrarkotið sitt í miðasölu þess skíðasvæðis sem viðkomandi ætlar að heimsækja og fær þá afhentan miða á svæðið.