Yfirburðarsigur 8. flokks stúlkna í körfu

Stelpurnar í 8. flokki stúlkna í körfuknattleiksdeild Tindastóls unnu stórsigur á Þórsurum frá Akureyri þegar þær léku frestaðan leik í Síkinu sl. föstudag. Samkvæmt heimasíðu Tindastóls var leikurinn síðan úr síðustu umferð Íslandsmótsins, þegar Þórsarar komust ekki frá vegna veðurs.

„Fyrir leikinn höfðu okkar stelpur þegar tryggt sér sigurinn í B-riðli með yfirburðum. Þórsarar ákváðu að spila sína leiki úr síðustu umferðinni þrátt fyrir að komast ekki á tilsettum tíma og er það til eftirbreytni,“ segir á heimasíðu Tindastóls.

Stúlkurnar unnu með yfirburðum og endaði stigaskorið 66-12.

Stigaskorið var eftirfarandi: Bríet 18, Kolbrún 16, Linda 14, Valdís 8, Sunna 2, Jóna 2, Anna 2 og Helga 2.

Fleiri fréttir