Fréttir

Ístölt Hnjúkatjörn - úrslit

Keppt var í ístölti á Hnjúkatjörn við Blönduós í gær á frábærum ís og í ágætu veðri. Mótið þótti takast vel í alla staði og vill mótanefnd koma þakklæti til allra þeirra fjölmörgu er að mótinu kom. Úrslit urðu
Meira

MÍ 11-14 í frjálsum Skagfirðingar komu heim með 12 verðlaun

Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum innanhúss, fyrir 11-14 ára, fór fram í Laugardalshöllinni í Reykjavík helgina 26. og 27. febrúar. Skagfirðingarnir unnu til 12 verðlauna á mótinu, 2 gull-, 6 silfur- og 4 bronsverðlauna. ÍR...
Meira

Albert Óli Þorleifsson sigraði í Blönduvision

Árleg árshátíð Blönduskóla fór fram á föstudaginn að viðstöddu fjölmenni þar sem ýmislegt var til skemmtunar. Sagt var frá mörgum skemmtilegum og forvitnilegum uppákomum í vetur,  nemendur unglingadeildar sýndu leikritið „...
Meira

Alþjóðadagur RKÍ á Hvammstanga

Hvammstangadeild Rauða kross Íslands hefur í hyggju að halda alþjóðadag í marsmánuði og eru allir erlendir íbúar svæðisins hvattir til að setja sig í samband við deildina vegna þessa. Markmið dagsins er að kynnast menningu erle...
Meira

Aðalfundur Umf. Hvatar á morgun

Á morgun verða haldnir aðalfundir Umf. Hvatar á Blönduósi og hefur verið auglýst eftir fólki til að taka þátt í aðalstjórn. Hugmyndir eru uppi um að stofna sunddeild og kanna á hvort áhugi sé fyrir því að endurvekja frjálsí...
Meira

Keppt í fimm gangi á miðvikudag

Næstkomandi miðvikudagskvöld verður keppt í KS Deildinni. Í þetta sinn er það 5 gangur og það stefnir í mjög harða keppni. Af 18 skráðum hrossum eru 11 hross sem hlotið hafa 1. verðlaun í kynbótadómi auk annarra þekktra keppn...
Meira

Sparisjóðs liðakeppnin - smali/skeið úrslit

 Á föstudagskvöldið var keppt í öðru móti Sparisjóðs-liðakeppninnar er keppt var í smala og skeiði á Blönduósi. Góð þátttaka var og mótið skemmtilegt og spennandi í alla staði, að sögn keppnishaldara. Úrslit urðu efti...
Meira

6 beiðnir um fjárhagsaðstoð afgreiddar

Á fundi félags- og tómstundanefndar Skagafjarðar í liðinni viku voru samþykktar 6 beiðnir einstaklinga í Skagafirði um fjárhagsaðstoð í fimm málum. Á árinu 2010 sóttu á sjötta tug fjölskyldna í Skagafirði um fjárhagsaðsto...
Meira

Umhleypingar í kortunum

Það eru umhleypingar í kortunum. Snýst í suðvestan 8-13 með skúrum, en 13-20 og él upp úr hádegi. Dregur úr vindi og éljum síðdegis á morgun. Kólnandi, hiti um og yfir frostmarki síðdegis.
Meira

Selja á Þangstaði

Gunnar Steingrímsson kom nýlega á fund skipulagsnefndar Skagafjarðar og gerði grein fyrir að bílavogin við Þangstaði í Hofsósi sé biluð og ekki svari kostnaði að endurnýja hana. Höfnin á vog sem notuð er í Hofsósi og fullnæ...
Meira