Litlujól í heitapottinum
Í desember eru víða haldin svokölluð litlujól eða jólahlaðborð og er þá tekið hressilega til matar síns. Oft fylgir jólaglöggið með og hefur lögreglan haft sérstakt eftirlit með ökumönnum í jólamánuðinum ef svo óvarlega er farið að sest er undir stýri eftir að áfengis er neytt.
Gjarna eru þessar samkomur að kvöldi til um helgar en svo er ekki alls staðar. Í morgun kl 6.50 mætti Húnahópurinn svokallaði í Sundlaug Sauðárkróks, þar sem meðfylgjandi mynd var tekin, og hélt sín litlujól í heitapottinum. Boðið var upp á miklar og góðar kræsingar, drykki og vísur eftir G. Sandholt. Ekki þótti ástæða til að ræsa út lögregluna til að hafa sérstakt eftirlit með hópnum enda þar á ferð mikil prúðmenni.