Hlíðarkaup 20 ára
Þann 14. desember sl. voru liðin 20 ár frá því að Hlíðarkaup á Sauðárkróki opnaði verslun sína í Hlíðarhverfi á Sauðárkróki. Í fyrstu ætluðu eigendur hennar einungis að reka hana í stuttan tíma og selja svo reksturinn en það fór á annan veg.
Ásgeir Einarsson verslunarstjóri hefur frá upphafi staðið fyrir traustum rekstri og er verslunin þekkt fyrir góða og metnaðarfulla þjónustu og fjölbreytt vöruúrval. Fyrir skömmu hlaut verslunin Hvatningarverðlaun SSNV vegna þess dugnaðar og framsýni sem eigendur hafa sýnt við uppbyggingu fyrirtækisins.
Ásgeir segir að í tilefni afmælisins verði sérstök hátíðartilboð alla daga fram að jólum sem kemur sér vel í jólaösinni og hvetur hann fólk til að koma og kynna sér úrvalið. –Ég vil koma kæru þakklæti til allra þeirra sem átt hafa viðskipti við okkur síðastliðin 20 ár og óska þeim gleðilegra jóla og áramóta, segir Ásgeir.