Jólastemning á Hvammstanga um helgina

Nóg er um að vera á Hvammstanga um helgina en þar verður meðal annars hægt að versla sér jólaföt í Hlöðunni, jólatré frá Björgunarsveit Húna eða hitta jólasvein í Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga.

Silfur-Hlaðan verður með fatamarkað í Hlöðunni á morgun, laugardaginn 17. desember frá kl. 14-18. Kaffihúsið verður opið og verður hægt að fá þar vöfflur og kakó. Hér er hægt að sjá fataúrvalið hjá Silfur-Hlöðunni.

Sem fyrr segir verður jólasveinn á ferðinni á morgun í KVH milli kl. 14-16. Þar verður hægt að láta taka mynd af sér með sveinka og aldrei að vita nema að hann lumi á einhverju góðgæti.

Björgunarsveitin Húnar verða svo með jólatrjáasölu í Húnabúð í dag fram á sunnudag en allur ágóði af sölunni rennur til unglingastarfs björgunarsveitarinnar.  Jólatrjáasalan fer fram á eftirfarandi tímum:

Föstudaginn 16. desember kl. 16-19
Laugardaginn 17. desember kl. 13-16
Sunnudaginn 18. desember kl. 13-16

Einnig er hægt að hafa samband við Pétur í síma 895 1995 eða Gunnar Örn í síma 858 9216 og versla sér tré.

Þeir sem vilja fara í smá bíltúr geta heimsótt Leirhús Grétu á Litla Ósi en þar er hægt að finna fallega leirmuni til að setja í jólapakkann. Þar verður opið á eftirfarandi tímum:

  • Föstudaginn 16. desember kl. 13-18
  • Laugardaginn 17. desember kl. 13-16

 

Fleiri fréttir