Guðmar Freyr knapi ársins hjá Skagfirðingi

Guðmar Freyr Magnússon knapi ársins hjá Hestamannafélaginu Skagfirðingi 2022. Myndir af skagfirdingur.is.
Guðmar Freyr Magnússon knapi ársins hjá Hestamannafélaginu Skagfirðingi 2022. Myndir af skagfirdingur.is.

Á árshátíð Hestamannafélagsins Skagfirðings, sem fram fór síðasta föstudag í Ljósheimum, voru knapar ársins hjá félaginu verðlaunaðir, líkt og venja er fyrir. Félagið greinir frá því á heimasíðu sinni að Guðmar Freyr Magnússon hafi verið útnefndur knapi ársins.

Hér fyrir neðan má lesa um útnefnda knapa í hverjum flokki, en þær upplýsingar eru fengnar á Skagfirdingur.is  en þar er einnig hægt að finna öll þau sem tilnefnd voru ásamt hluta af þeirra árangri í sumar.

Knapi ársins

Guðmar Freyr Magnússon var útnefndur knapi ársins hjá hestamannafélaginu en hann átti góðu gengi að fagna á keppnisvellinum á sínu fyrsta keppnisári í meistaraflokki meðal annars endaði hann í 2-3. sæti í gæðingaskeiði, reið B-úrslit í fimmgangi á Íslandsmóti og í A-flokki á Landsmóti Hestamanna. Einnig náði hann góðum árangri á WR Hólamóti UMSS og Skagfirðings en hans helstu keppnishross í ár voru Rosi frá Berglandi 1, Vinátta frá Árgerði og Brimar frá Varmadal.

Elvar Einarsson, formaður Skagfirðings
og Guðmar Freyr Magnússon knapi ársins 2022

Skeiðknapi ársins

Daníel Gunnarsson var útnefndur skeiðknapi ársins hjá félaginu en hann varð í fjórða sæti í 250m skeiði á Landsmóti hestamanna, fimmta sæti í 100m og öðru sæti í 150m skeiði Meistaradeildar Líflands og 2. sæti í flugskeiði og 150m skeiði Meistaradeildar KS, annar í 250m skeiði á Reykjavíkurmeistaramóti, 2. sæti í 250m skeiði á Gæðingamóti Fáks. Á WR Hólamóti UMSS og Skagfirðings var hann í öðru sæti í 100m skeiði þar sem hann fór á 7,50 sekúndum og sigraði í 250m skeiði. Hans helstu keppnishross voru Eining og Kló frá Einhamri 2, Strákur frá Miðsitju, Storð frá Torfunesi og Glæða frá Akureyri.

Daníel Gunnarsson skeiðknapi ársins,
Mette Mannseth og Sigurður Heiðar Birgisson.

Íþróttaknapi Skagfirðings

Mette Mannseth var útnefnd íþróttaknapi Skagfirðings en Mette sigraði í fimmgangi, tölti, fjórgangi og slaktaumatölti á WR Hólamótinu í vor, reið A-úrslit í slaktaumatölti á Landsmóti Hestamanna, var þriðja í einstaklingskeppni Meistaradeildar Líflands og sigraði í fjórum greinum í Meistaradeild KS ásamt því að sigra í einstaklingskeppninni. Hennar keppnishross í ár voru Skálmöld, Kalsi og Blundur frá Þúfum ásamt skeiðhestinum Vívaldi frá Torfunesi.

Mette Mannseth íþróttaknapi Skagfirðings
og Guðmar Freyr Magnússon.
Einnig var tilnefndur Finnbogi Bjarnason
sem var staddur erlendis.

Gæðingaknapi Skagfirðings

Skapti Steinbjörnsson var útnefndur gæðingaknapi Skagfirðings en Skapti sigraði bæði í A- og B-flokki á félagsmóti Skagfirðings ásamt því að sigraði í A-flokki á Mývatn Open og Stórmóti Þjálfa. Hans helstu keppnishross í ár voru Lokbrá og Lukka frá Hafsteinsstöðum.

Skapti Steinbjörnsson gæðingaknapi Skagfirðings
og Guðmar Freyr Magnússon.
Einnig var tilnefndur Bjarni Jónasson
sem staddur var erlendis.

Knapi ársins í ungmennaflokki

Freydís Þóra Bergsdóttir var útnefnd knapi ársins í gríðarlega sterkum ungmennaflokki. Freydís sigraði í B-úrslitum í tölti ungmenna á Íslandsmótinu á Hellu og lenti í 7. sæti í A-úrslitum. Einnig reið hún A-úrslit á Landsmóti Hestamanna þar sem hún hlaut 8. sæti með Ösp frá Narfastöðum. Einnig keppti hún með Ösp og Burkna frá Narfastöðum í vetrarmótaröð Skagfirðings þar sem hún sigraði tölt og fjórgang og var önnur í fimmgangi.

Freydís Þóra Bergsdóttir knapi ársins í ungmennaflokki,
Stefanía Sigfúsdóttir og Björg Ingólfsdóttir.

Knapi ársins í áhugamannaflokki

Stefán Öxndal Reynisson var útnefndur knapi ársins í áhugamannaflokki en hann sigraði bæði A-flokk og B-flokk áhugamanna á gæðingakvöldmóti Skagfirðings, var í 3. sæti í tölti og fimmgangi á WR Hólamótinu, vann A-flokk í Vetrarmótaröð Skagfirðings og fjórði í tölti. Einnig voru tilnefnd Guðrún Hanna Kristjánsdóttir en hún sigraði fjórgang á WR Hólamótinu og var önnur í tölti. Einnig tók hún þátt í vetrarmótaröðinni þar sem hún var fjórða í gæðingatölti og Þóranna Másdóttir en hún sigraði tölt á WR Hólamótinu og var önnur í fjórgangi. Einnig var hún dugleg að taka þátt í vetrarmótaröð Skagfirðings en þar var hún önnur í gæðingatölti.

Þóranna Másdóttir

Félagsmaður ársins

Heiðrún Ósk Jakobínudóttir var útnefnd sem félagsmaður ársins en félagið hefur í nokkur ár verðlaunað þann félagsmannr sem hefur að óeigingirni og dugnaði verið boðinn og búinn til að sinna hinum ýmsu störfum og tekið þátt í félagsstarfinu að mikilli jákvæðni svo eftir er tekið.

„Hún er jákvæð, drífandi og mjög svo óeigingjörn á sinn tíma fyrir félagið þrátt fyrir að vera oftast einstæð móðir með tvö börn… Heiðrún Ósk Jakobínudóttir þú ert dásamlegt eintak, innilega til hamingju með útnefninguna og hafðu bestu þakkir fyrir óeigingjörn störf í þágu okkar félagsmanna,“ segir í frétt Skagfirðings.

Félagsmaður ársins!

Nánar er hægt að fræðast um tilnefningar til verðlaunanna HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir