Fyrri umferð í 2. og 3. deild lokið
Fyrri umferð Íslandsmótanna í 2. og 3. deild karlafótboltans kláraðist nú um helgina. Lið Tindastól krækti í stig í Kópavogi en lið Kormáks/Hvatar svekkir sig eflaust á því að hafa tapað á heimavelli fyrir einu af botnliðum 2. deildar. Bæði lið hefðu efalaust viljað krækja í fleiri stig í fyrri umferðinni en það er nú eins og það er.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Nýi sveitarstjórinn á Skagaströnd hefur störf
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Mannlíf, Lokað efni 12.08.2026 kl. 15.30 hinrik@feykir.isÞann 1. ágúst s.l. tók Ólafur Þór Ólafsson til starfa sem sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagastrandar. Þessa fyrstu viku í starfi hefur hann verið að setja sig inn í hin ýmsu málefni er varða sveitarfélagið og haft í mörg horn að líta. Ólafur Þór hefur áður verið sveitarstjóri hjá Tálknafjarðarhreppi og Reykhólahreppi en kemur upphaflega frá Suðurnesjum. Hann ólst upp í Sandgerði þar sem hann var lengi starfandi í sveitarstjórnarmálum, m.a. forseti bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar og formaður bæjarráðs Suðurnesjabæjar.Meira -
Elvar er til í slaginn aftur
Elvar Einarsson bóndi á Syðra-Skörðugili er maður ekki einhamur. Elvar er formaður hestamannafélagsins Skagfirðings sem var mótshaldari Landsmóts á Hólum og var Elvar formaður framkvæmdanefndar. Blaðamaður Feykis náði að setjast niður með Elvari kl: 8 að morgni 16. júlí en þá var hann staddur heima hjá sér í stutta stund en annars var hann og hans fólk statt í hestaferð með erlenda ferðamenn og var verið að leggja af stað í legg dagsins.Meira -
Myndasyrpa frá Unglingalandsmótinu
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf 12.08.2026 kl. 13.46 oli@feykir.isEins og varla hefur farið framhá lesendum Feykis þá var Unglingalandsmót UMFÍ haldið á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Mótið heppnaðist vel í alla staði og veðrið spilað með. Ljósmyndarar á vegum UMFÍ voru duglegir við sína iðju og fékk Feykir góðfúslegt leyfi til að birta myndasyrpu frá mótinu.Meira -
Undirfellskirkja skiptir um eigendur
Undanfarna mánuði hefur verið unnið að sameiningu Undirfells- og Þingeyrasóknar vegna fámennis í báðum sóknum. Í Húnahorninu segir að í kjölfar þeirrar vinnu hafi legið fyrir að þörf væri aðeins fyrir eina kirkju innan sameinaðs safnaðar og var ákveðið að Þingeyrakirkja yrði sóknarkirkja.Meira -
Hólahátíð nálgast
Helgina 15.-16. ágúst fer fram hin árlega Hólahátíð að Hólum í Hjaltadal. Hólahátíð barnanna verður á laugardeginum og er þá dagskrá fyrir börn og fjölskyldur. Lydía Einarsdóttir svæðisstjóri æskulýðsmála og Karl Lúðvíksson íþróttakennari sjá um dagskrána. Þá stendur einnig til boða að ganga upp í Gvendarskál með sr. Sigríði Gunnarsdóttur prófasti og sér hún jafnframt um helgistund við Gvendar altari. Eftir það verður grillað við Auðunarstofu.Meira
