Heimaleikur hjá Stólunum í kvöld
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
29.07.2015
kl. 11.40
Meistaraflokkur Tindastóls tekur á móti liði Njarðvíkur í heimaleik á Sauðárkróksvelli kl. 20.00 í kvöld. Strákarnir í Tindastól eru í 9. sæti í deildinni með 13 stig en Njarðvík í því 11. með 11 stig, og því er um mikilvægan leik að ræða.
Fólk er hvatt til að mæta á völlinn og styðja Stólana til sigurs!
Fleiri fréttir
-
Alvarlegt umferðarslys við Olís í Varmahlíð
Lögreglan á Norðurlandi vestra sendi frá sér tilkynningu rétt í þessu þar sem greint er frá því að nú fyrr í dag varð alvarlegt umferðarslys er ekið var á tvo gangandi vegfarendur við söluskála Olís í Varmahlíð. Um er að ræða barn og fullorðinn einstakling. Þau voru flutt flugleiðis á Landspítalann.Meira -
Blikar bíða Húnvetninga í bikar
feykir.is Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 29.03.2026 kl. 18.31 oli@feykir.isÞað er spilað í Mjólkurbikarnum nú um helgina og í gær gerði lið Kormák/Hvatar sér lítið fyrir og skaust norður á Húsavík, þar sem Lengjudeildar-lið Völsungs beið þeirra, og lögðu þá grænu í gervigras eftir framlengdan leik. Lokatölur voru 2-3 og um næstu helgi bíður stærri lax Húnvetninga því þá mæta þeir liði Breiðabliks.Meira -
Guðrún og Magnús tóku þátt í Vasa-göngunni enn og aftur
Íþróttagarpar eru á öllum aldri. Þannig fékk Feykir ábendingu um það nýverið að hjón á áttræðisaldri sem byggju í Fljótunum væru að keppa í Vasa-göngunni sænsku sem er mikil þolraun og að sjálfsögðu er gengið á skíðum. Um er að ræða þau Magnús Eiríksson og Guðrúnu Pálsdóttur sem búa á Reykjarhóli á Bökkum í Fljótum. Feykir sendi Guðrúnu strax skilaboð og var komist að samkomulagi um að heyrast betur að keppni lokinni, nokkrum dögum síðar.Meira -
Engin kosning um menningarhús á Sauðárkróki
Umræða um menningarhús á Sauðárkróki hefur náð að valda titringi hjá rólegasta fólki síðustu vikur og ekki allir á eitt sáttir. Byggðalistinn lagðifram tillögu um íbúakosningu sem tekin var til umfjöllunar á fundi sveitasrstjórnar þann 25. febrúar sl. en var felld með fimm atkvæðum meirihlutans. Nú á miðvikudag tók síðan sveitarstjórn fyrir tillögu frá þremur íbúum sem laut að ósk um atkvæðagreiðslu um ákvörðun um byggingu menningarhúss og samninga við ríkið þar um. Fram kemur í tilkynningunni að óskað sé atkvæðagreiðslu um frestun byggingar menningarhúss á Sauðárkróki og endurupptöku á samningi við ríkið vegna þess. Sú tillaga var einnig felld af meirihluta sveitarstjórnar.Meira -
Í fyrsta sinn á Íslandi
feykir.is Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning, Lokað efni 28.03.2026 kl. 09.00 gunnhildur@feykir.isLeikflokkur Húnaþings vestra frumsýnir gamansöngleikinn Addams fjölskyldan núna um páskana og er þetta í fyrsta skipti sem söngleikurinn er sýndur á Íslandi. Leikstjóri og þýðandi söngleiksins er Sigurður Líndal sem er lesendum mörgum kunnur og danshöfundur sýningarinnar er Benjamin Di'Ath. Æfingar hafa gengið vel og er þetta fjórði söngleikurinn sem Leikflokkur Húnaþings vestra setur upp og ekkert slakað á í framsetningu nú frekar en fyrri ár.Meira
