Lokað í dag vegna veðurs
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir
11.02.2011
kl. 11.31
Mjög hvasst er á Skíðasvæði Tindastóls í dag 12 til 18m/S og skafrenningur. Því mun ekki verða hægt að renna sér á skíðum þennan föstudaginn. Hins vegar spáir blíðu veðri á morgun laugardag og segir á heimasíðu Tindastóls að gert sér ráð fyrir að þá verði hægt að skíða í frábæru færi.
Fleiri fréttir
-
Góðar hugmyndir á landsbyggðinni | Anna Sif Ingimarsdóttir og BlómAría
Nú nýlega var greint frá því að Startup Landið, sem er nýsköpunarhraðall fyrir frumkvöðla á landsbyggðinni, hafi valið 14 fjölbreytt nýsköpunarverkefni af öllu landinu til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Landið. Hraðallinn er sérstaklega hannaður til að efla atvinnulíf, verðmætasköpun og nýsköpun á landsbyggðinni.Meira -
Vildu búa til fjör og stemningu í kringum lestur
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning, Mannlíf 01.10.2026 kl. 15.18 oli@feykir.isSvakalega lestrarkeppnin 2026 hófst 15. september og stendur til 6. október 2026. Um er að ræða lestrarátak fyrir krakka í 1.-7. bekk um land allt. Allir skólar geta tekið þátt og keppa um hver les mest á tímabilinu. Markmið keppninnar er að auka lestraránægju barna. Það eru rithöfundarnir Blær Guðmundsdóttir og Eva Rún Þorgeirsdóttir sem standa fyrir Svakalegu lestrarkeppninni. Þær hafa hlotið ýmsar viðurkenningar og verðlaun fyrir verk sín og nýverið hlutu þær Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2026 fyrir handritið að glænýrri barnabók sem ber heitið Bestu vinir en bókin fékk einmitt glimrandi dóma í Kiljunni í gærkvöldi.Meira -
Erla Hrund tekin við sem fjármálastjóri FNV
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 01.10.2026 kl. 14.26 oli@feykir.isErla Hrund Þórarinsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og tekur til starfa í dag, 1. október. Í tilkynningu á heimasíðu FNV segir að Erla búi yfir víðtækri reynslu af fjármálum, reikningsskilum og endurskoðun. Erla starfaði áður hjá Byggðastofnun sem umsjónarmaður áhættustýringar frá árinu 2023.Meira -
Ánægja með fund um málefni Gamla bæjarins á Króknum
Samráðsfundur um deiliskipulag Gamla bæjarins á Sauðárkróki fór fram í Árskóla sl. mánudag. Í frétt á vef Skagafjarðar segir að ánægjulegt hafi verið hversu margir mættu á fundinn en um og yfir 100 íbúar komu saman og tóku þátt í umræðunni. Feykir spurði Eyþór Fannar Sveinsson, oddvita Byggðalistans og formann byggðarráðs Skagafjarðar, aðeins út í fundinn.Meira -
Bleika slaufan er mætt
Feykir sagði frá því í gær að Bjarkirnar, félagsskapur kvenna í Skagafirði, ætla í októbermánuði að hengja upp bleikar útislaufur á ljósastaura við Aðalgötu og Skagfirðingabraut á Sauðárkróki. Með þessu vilja Bjarkirnar leggja Krabbameinsfélaginu lið í baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Bleikar útislaufur verða einnig til sölu á 5.000 kr.Meira
