Skagfirðingar í yngri landsliðshópunum í körfunni
Þjálfarar yngri landsliða Íslands í körfuknattleik hafa valið sína fyrstu æfingahópa en frá þessu segir á vef KKÍ. Koma U15 og U16 liðin ásamt U18 drengja saman til æfinga rétt fyrir jól. U18 stúlkna landsliðið hefur æfingar þegar Íslandsmótinu lýkur. Tveir leikmenn Tindastóls eru í liðunum, systkinin Hallur Atli og María Hrönn Helgabörn og er rétt að óska þeim til hamingju.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Inga og Rannveig áfram í vínrauðu
Stólastúlkurnar Inga Sólveig Sigurðardóttir og Rannveig Guðmundsdóttir framlengja við Tindastól og spila áfram með liðinu á næsta tímabili. Israel Martin, þjálfari kvenaliðs Tindastóls, lýsir yfir mikilli ánægju með að Inga og Rannveig hafi framlengt samninga sína við félagið. Hann segir það dýrmætt fyrir áframhaldandi vöxt og uppbyggingu liðsins að halda kjarnanum frá síðustu tveimur tímabilum áfram.Meira -
Viðburðarstýrur Hofsós heim hlakka mikið til
Auður Björk og Vala Kristín eru viðburðarstýrur Hofsós heim, sem haldin verður dagana 18. – 22. júní í ár. Stelpurnar eru báðar uppaldnar í Skagafirði og hafa búið þar meiripart ævinnar. Þær hafa verið vinkonur síðan þær voru unglingar og sinna verkefni viðburðastýru saman. Auður býr í dag á Grindum í Deildardal með Rúnari Páli og þremur börnum. Vala býr á Hofsósi með Helga Hrannari og fimm börnum þeirra. Feykir hafði samband við Auði og Völu og fékk þær til þess að svara nokkrum skemmtilegum spurningum.Meira -
Stólastrákarnir sóttu sigur en Kormákur/Hvöt og Stólastelpur máttu þola töp
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 15.06.2026 kl. 09.27 bladamadur@feykir.isAllir þrír meistaraflokkarnir spiluðu um helgina og aðeins Stólastrákarnir sóttu stig en Stólastelpur og Kormákur/Hvöt máttu þola töp. Stólastrákarnir eru því enn efstir með 19 stig en Kormákur/Hvöt datt niður um þrjú sæti og eru núna í sjöunda sæti með 11 stig. Stólastelpurnar leita enn að fyrsta sigrinum og eru á botni Lengjudeildarinnar.Meira -
Frönsk gúllassúpa og sunnudagsbrauð | Matgæðingar Feykis
Matgæðingar vikunnar í tbl. 4 voru Ólafur Atli Sindrason og Helga Sigurðardóttir en þau búa á Grófargili og eru bæði kennarar í Varmahlíðarskóla. Óli, eins og hann er oftast kallaður, er alinn upp á Breið í gamla Lýtingsstaðahreppi en Grófargil er æskuheimili Helgu.Meira -
Fagnaði með þeim fréttum að hann væri öklabrotinn
Helgi Freyr Guðmundsson, tíundabekkingur í Grunnskóla Húnaþings vestra, keppti fyrir hönd skólans í Skólahreysti en svo kom til að hann öklabrotnaði í upphitun og gat því ekki keppt í úrslitunum, hann átti að keppa í hraðaþraut. Helgi býr á Enniskoti í Húnaþingi vestra með mömmu sinni Þóru Björg Kristmundsdóttur ásamt Eggert og tveimur bræðrum þeim Kristjáni og Arnari. Pabbi hans, Guðmundur Helgi Gíslason býr á Sauðárkróki ásamt Írisi Elefsen og bræðrum Helga, Sigurði og Hilmari. Hann keppti í fyrsta skipti í Skólahreysti í ár, en hvað er betra en að enda á toppnum? Feykir hafði samband við Helga og fékk hann til þess að segja frá Skólahreysti upplifuninni sinni.Meira
