Ævintýraferð nemenda unglingastigs Grunnskólans austan Vatna

Galvaskur hópur nemenda unglingastigs GAV. MYNDIR AF HEIMASÍÐU GAV
Galvaskur hópur nemenda unglingastigs GAV. MYNDIR AF HEIMASÍÐU GAV

Skólarnir eru komnir á fullt að hausti eins og lög og reglur gera ráð fyrir og þar er ávallt líf og fjör. Á heimasíðu Grunnskólans austan Vatna segir varaformaður nemendaráðs, Ingunn Marín B. Ingvarsdóttir, hressilega frá hinni árlegu Ævintýraferð nemenda unglingastigs skólans. Áð var á Fjalli í Kolbeinsdal og mun ferðin hafa heppnast vel í alla staði.

Frásögn Ingunnar er á þessa leið: „Miðvikudaginn 14. september vöknuðum við krakkarnir í unglingastiginu og gerðum okkur klár fyrir okkar fyrstu og/eða síðustu Ævintýraferð. Þegar við mættum í skólann smurðum við okkur haug af samlokum (sex á mann) og settum skinkuhorn, snúða og muffins sem við bökuðum deginum áður í poka. Ég þori að veðja að við hefðum getað nært heilt þorp með þessu bakkelsi.

Þegar allir voru tilbúnir og vel klæddir þá var okkur skutlað á Sleitustaði og þaðan gengum við upp Kolbeinsdal að Fjalli, skálanum sem við gistum í um nóttina. Gangan gekk vel, við fengum gott gönguveður og það var gaman að sjá inn í Kolbeinsdal. Þrátt fyrir stutta vegalengd stoppuðum við oft og lengi til að næra okkur...

Húsið á Fjalli var alveg til fyrirmyndar en við vorum búin að búa okkur undir það versta því kennararnir voru búnir að ljúga því að okkur að það væri einungis útikamar í hesthúsinu. Við vorum því mjög hissa þegar við komumst að því að það væri venjulegt klósett inni í húsinu.

Þegar við vorum búin að koma okkur fyrir var ýmislegt brallað; spil, leikir og útivera. Þegar kvölda tók grilluðu kennaralufsurnar handa okkur hamborgara, enda allir orðnir svangir (eða þannig). Um kvöldið fórum við síðan í allskonar leiki og röbbuðum við okkar heitt elskuðu kennara. Síðan fóru allir stilltir og prúðir að sofa.

Við vorum búin að búa okkur undir ískalda nótt því ekkert rafmagn er í húsinu, klæða okkur í föðurland og ullarsokka og renna svefnpokanum upp að höku. En það var langt frá því að vera kalt á svefnloftinu þar sem við stelpurnar sváfum. Okkur var semsagt kynjaskipt af því að okkar heitt elskaði umsjónarkennari vildi ekki að getnaður ætti sér stað. En hitinn var þvílíkur á svefnloftinu að það var móða á glugganum og sviti rann af hverri einustu stúlku.

En við lifðum það af og morguninn eftir vöknuðum við eldsnemma við lætin í Röggu og Tótu sem rifu okkur á lappir til að borða og þrífa húsið. Því næst var okkur skutlað í Grunnskólann á Hólum en þaðan hjóluðum við í Hofsós. Hjólaferðin gekk vel og allir kepptust um að vera fyrstir (eða á eftir Tótu – það var ekki sjéns að halda í við hana). Það var gott veður, sól og blíða og öllum leið vel (eða allavega mér, veit ekki með hina).

Þegar við komum á leiðarenda tóku nemendur og starfsmenn vel á móti okkur og veifuðu íslenska fánanum okkur til heiðurs. Á meðan við létum líða úr okkur í sundlauginni slógu yngri krakkarnir og kennararnir upp veislu fyrir framan skólann þar sem boðið var upp á ýmis konar gúmmelaði. Þetta var rosaleg ferð og mun ég seint gleyma henni!

Ingunn Marín B. Ingvarsdóttir, varaformaður nemendaráðs.“

- - - - -

Feykir fékk góðfúslegt leyfi fyrir birtingunni.
Myndir af heimasíðu GAV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir