Áslaug Arna heimsótti Háskólann á Hólum

Áslaug Arna til hægri ásamt Eddu Matthíasdóttur framkvæmdastjóra Háskólans á Hólum. MYND: STJÓRNARRÁÐIÐ.IS
Áslaug Arna til hægri ásamt Eddu Matthíasdóttur framkvæmdastjóra Háskólans á Hólum. MYND: STJÓRNARRÁÐIÐ.IS

Á vef Stjórnarráðsins segir frá því að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hafi heimsótt Háskólann á Hólum í síðustu viku ásamt ráðuneytisstjóra og kynnt sér starfsemina. Fram kemur að mikil og ánægjuleg aukning á fjölda nemenda hafi orðið við háskólann, þá sérstaklega við fiskeldis- og fiskalíffræðideild, sem kallar á frekari uppbyggingu á aðstöðu fyrir það nám.

„Ráðherra fundaði einnig með Eddu Matthíasdóttur, framkvæmdastjóra Háskólans á Hólum, og öðru forsvarsfólki skólans, um tækifæri sem gætu falist í samstarfi skólans við aðra háskóla á Íslandi og með hvaða hætti mætti styrkja starfsemi skólans í gegnum slíkt samstarf. Háskólinn á Hólum hefur sýnt ríkan áhuga á auknu samstarfi háskóla í takt við áherslur ráðherra og er t.a.m. aðili að átta samstarfsverkefnum háskólanna sem kynntar voru í upphafi árs. Meðal þessara verkefna er öflugt háskólanám í þágu fiskeldis sem Háskólinn á Hólum, Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og Landbúnaðarháskóli Íslands standa að,“ segir í umfjölluninni en um er að ræða nám á grunn- og framhaldsstigi í eldi, ræktun og nýtingu sjávar- og vatnalífvera, samhliða samræmdum rannsóknum og rannsóknainnviðum sem stuðlar að forystuhlutverki Íslands í sjálfbæru lagareldi.

Heimild: Stjórnarráðið.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir