Badmintondeild stofnuð innan raða Tindastóls

Helgi Jóhannesson badmintonþjálfari. MYND AF NETINU
Helgi Jóhannesson badmintonþjálfari. MYND AF NETINU

Kannski kemur það einhverjum á óvart að heyra að fleiri íþróttir en körfubolti og fótbolti séu stundaðar á Króknum. Þetta er staðreynd og nú nýverið bættist enn í íþróttaflóruna þegar Helgi Jóhannesson landsliðsþjálfari í badminton stofnaði badmintondeild innan raða Ungmennafélagsins Tindastóls.

Í frétt á vef Badmintonsambands Íslands segir að aðdragandann megi rekja til þess að Helgi, sem er aðalþjálfari Tindastóls og landsliðsþjálfari auk þess að hafa leikið yfir 50 landsleik, fluttist norður með fjölskyldu sína en dætur hans höfðu þá æft badminton í nokkur ár. Áhuginn var mikill og dapurleg tilhugsun að þurfa að leggja spaðann á hilluna svo leitað var samstarfs við Sveitarfélagið Skagafjörð sem úthlutaði Helga dýrmætum tíma í þéttsetnu íþróttahúsinu. Áhuginn var mikill hjá ungum Skagfirðingum, enda badminton skemmtileg íþrótt,og nú æfa um 14 krakkar badminton tvisvar í viku. 

„Það er frábært að geta stuðlað með beinum hætti að útbreiðslu badmintoníþróttarinnar með því að stofna deild hér á Sauðárkróki.“ segir Helgi. „Okkur hefur verið vel tekið alls staðar þar sem við höfum komið, hvort sem er af iðkendum, foreldrum, bæjaryfirvöldum eða forsvarsmönnum Tindastóls og kann ég þeim bestu þakkir fyrir frábærar móttökur. Starfið hefur farið vel af stað og ég afskaplega þakklátur fyrir þann tíma sem hefur verið úthlutað í íþróttahúsinu, krakkarnir eru mjög duglegir, mæta vel og taka miklum framförum. Vonandi getum við svo farið að skipuleggja keppnisferðir í opin unglingamót þegar það fer af stað aftur. Það verður gaman að mæta með krakkana og halda uppi merkjum Tindastóls á badmintonvellinum,“ er haft eftir Helga.

Því má svo í lokin bæta við að innan Tindastóls er auk badmintons, körfubolta og knattspyrnu hægt að æfa sund, frjálsar, skíði, júdó og bogfimi. Á Króknum er einnig siglinga- og hjólreiðafélag, golfklúbbur, skotfélag, folfvöllur auk þess sem þekkt er að Skagfirðingar stunda hestamennsku af miklum móð. Nú er næsta víst að blaðamaður er að gleyma einhverju ófyrirgefanlegu og er beðist velvirðingar á því ... jú, skák er víst íþrótt...

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir