„Birta á að fá þessa bók“

Birta á kontórnum. AÐSEND MYND
Birta á kontórnum. AÐSEND MYND

Bók-haldið bankaði upp á hjá Birtu Ósmann Þórhallsdóttur, rétt rúmlega þrítugum bókaútgefanda hjá Skriðu bókaútgáfu, á vordögum. Birta hafði verið búsett á Hvammstanga en var að flytja til Patreksfjarðar á þessum tíma. Hún er að auki rithöfundur og þýðandi en hafði einnig verið í hlutastarfi við skráningu gripa fyrir Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna.

Birta segist yfirleitt vera með nokkrar bækur á náttborðinu og á skrifborðinu. „Þessa stundina er ég djúpt sokkin ofan í Álabókina: sagan um heimsins furðulegasta fisk eftir Patrik Svensson í frábærri þýðingu Þórdísar Gísladóttur. Er einnig að lesa ljóðabókina Aftanskin eftir Rannveigu Guðnadóttur. Auk þess er ég alltaf með húslestur á meðan maðurinn minn eldar, þessa dagana erum við að lesa Söngur villiandarinnar, smásögur eftir Einar Kárason.“

Hver er uppáhaldsbókin af þeim sem þú hefur lesið gegnum tíðina? „Þær eru margar. Til dæmis Brekku-kotsannálleftir Halldór Laxness, Stúlkan í skóginum eftir Vigdísi Grímsdóttur, Svefnhjólið eftir Gyrði Elíasson og Íslenskur aðall og Ofvitinn eftir Þórberg Þórðarson. Annars les ég mest ljóð, fyrstar koma upp í hugann Undarlegt er að spyrja mennina og Svartur hestur í myrkrinu eftir Nínu Björk Árnadóttur og Fiðrið úr sæng Daladrottningar eftir Þorstein frá Hamri. Þær eru þó mikið fleiri bækurnar sem ættu skilið að vera taldar upp hér.“

Hvers konar bækur lestu helst? „Ég les mest ljóðabækur, er einnig hrifin af smásagna- og örsagnaforminu, les eins skáldsögur og gríp í þjóðlegan fróðleik og ævisögur. Síðan les ég mikið á spænsku, bæði skáldsögur og ljóðabækur og þýðingar úr erlendum málum yfir á íslensku.“

Hvaða bækur voru í uppáhaldi hjá þér þegar þú varst barn?Skilaboðaskjóðan eftir Þor-vald Þorsteinsson var í mestum metum. Einnig Dýrin í Hálsaskógi og Kardimommubærinn eftir Thorbjörn Egner og svo gleypti maður allar bækur Astrid Lindgren í sig.“

Hvaða bækur eru ómissandi eða er einhver ein bók sem hefur sérstakt gildi fyrir þig? „Ég held upp á margar gamlar ljóðabækur og sumar hafa alveg sérstakt gildi fyrir mig. Eina bók glugga ég líka oft í en það er bókin Merkisdagar á mannsævinni eftir Árna Björnsson þjóðháttafræðing. Ég var alltaf að fletta í bókinni hjá ömmu og afa á Hvammstanga, þegar þau voru síðan bæði látin og verið var að fara í gegnum eigur þeirra var þessi bók merkt mér, amma hafði skrifað innan í hana: „Birta á að fá þessa bók.“ Mér þykir vænt um þetta og fletti henni oft.“

Hvaða rithöfundar eða skáld fá hjartað til að slá örar, bíðurðu spennt eftir bókum frá einhverjum höfundi? „Gyrðir Elíasson, Vigdís Grímsdóttir, Þorsteinn frá Hamri, Rosario Castellanos, Mario Bellatin, Nína Björk Árnadóttir, Geir-laugur Magnússon... Ég bíð reyndar alltaf spennt líka eftir bókum frá Ófeigi Sigurðssyni, nýjum ljóðabókum og góðum íslenskum þýðingum.“

Áttu þér uppáhalds bókabúð? „Ætli það sé ekki fornbókabúðin Bókin, á Klapparstíg. Annars finnst mér skemmtilegast að finna gullmola á nytjamörkuðum eða í gefins-hillum á bókasöfnum.“

Hversu margar bækur heldurðu að þú eignist árlega? „Þær eru margar. Ég les allar en sumar gef ég síðan áfram.“

Ertu fastagestur á einhverju bókasafni? „Ég vann á Bóka- og skjalasafninu á Hvammstanga og hef sótt það safn nokkuð mikið, hef hins vegar ekkert heimsótt safnið á Patreksfirði núna vegna covid, les í staðinn bækur sem mér áskotnuðust eða hef keypt.“

Hefur þú heimsótt staði sérstaklega vegna þess að þeir tengjast bókum sem þú hefur lesið? „Ekki man ég eftir því, nema í huganum.“

Hver er eftirminnilegasta bókin sem þú hefur fengið að gjöf? „Mamma gaf mér safnið sitt af verkum Geirlaugs Magnússonar í fyrra, hann kenndi henni í Fjölbraut á Sauðárkróki og hún hafði keypt margar bækur af honum og safnað bókunum eftir hann. Mér þykir afskaplega vænt um þetta safn.“

Hvað er best með bóklestri? „Bolli af rótsterku kaffi og kötturinn.“

Ef þú ættir að gefa einhverjum sem þér þykir vænt um bók, hvaða bók yrði þá fyrir valinu? „Það færi nú eftir því hvaða manneskja það væri, líklega yrði einhver ljóðabók fyrir valinu.“

- - -

Bók-hald Birtu var fyrst birt í Feyki í byrjun apríl 2021.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir