Frábær þátttaka í Umhverfisdegi FISK Seafood

Hressir krakkar tína rusl í Hegranesinu. Eins og sjá má á þessum úrvalsmyndum sem Davíð Már tók á Króknum og í nágrenni þá var góð þátttaka í Umhverfisdeginum. Að loknu púlinu var boðið í fiskisúpu og fleira fínt í húsakynnum Fiskmarkaðar Sauðárkróks. MYNDIR: DAVÍÐ MÁR
Hressir krakkar tína rusl í Hegranesinu. Eins og sjá má á þessum úrvalsmyndum sem Davíð Már tók á Króknum og í nágrenni þá var góð þátttaka í Umhverfisdeginum. Að loknu púlinu var boðið í fiskisúpu og fleira fínt í húsakynnum Fiskmarkaðar Sauðárkróks. MYNDIR: DAVÍÐ MÁR

Umhverfisdagur FISK Seafood var haldinn 6. maí síðastliðinn. Um er að ræða fjölskyldudag þar sem fjölskyldureru hvattar til að sameinast í útiveru með það að markmiði að fegra nærumhverfið og í leiðinni að styðja við það frábæra íþróttastarf sem fer fram í Skagafirði. FISK hét því að greiða fyrir hvern þáttakanda 12.000 kr. sem myndu renna til þess skagfirska íþróttafélags/deildar sem þátttakandi óskaði eftir. Það mættu 754 einstaklingar fyrir 15 aðila í Skagafirði sem er rúmlega 230 fleiri en í fyrra.

Að sögn Stefaníu I. Sigurðardóttur hjá FISK Seafood þá nam heildarupphæðin sem rann til félaganna/deildanna 9.048.000 kr. Starfsstöðvarnar voru líkt og í fyrra á Hofsósi, Hólum, Sauðárkróki og í Varmahlíð.

„Verkefnið er að stækka ár frá ári og sem dæmi má nefna að tiltektarsvæðið á Sauðárkróki árið 2022 var frá Steinullarverksmiðjunni, meðfram strandlengjunni að vestari vatnabrúnni. Í ár stækkuðum við umfangið á Sauðárkróki töluvert, tekið var til frá afleggjaranum út á Reykjaströnd að austari Vatnabrúnni auk þess sem tekið var til á Nöfunum. Eftir vel unnið verk hittumst við að Sandeyri 2 í nýju húsnæði Fiskmarkaðar Sauðárkróks og fengum okkur að borða og bárum saman bækur um hvernig hafði tekist til,“ segir Stefanía.

Hún segir að samkvæmt tölum frá Hagstofunni þá búi 4306 einstaklingar í Skagafirði og það megi því áætla að 17,5% Skagfirðinga hafi tekið þátt í verkefninu með FISK. „Sem við teljum frábært. Alls voru 18.370 kg af rusli fjarlægð úr okkar nærumhverfi sem er 9.670 kg meira heldur en í fyrra.

Að lokum bætir Stefanía við: „Mig langar að koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem gáfu sér tíma bæði til að aðstoða við skipulagningu og framkvæmd á verkefninu. Einnig þeim einstaklingum sem mættu og létu verkin tala, án alls þessa frábæra fólks væri svona verkefni ekki framkvæmanlegt.“

Snilld!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir