Jól í skókassa

Fullkomið fjölskylduverkefni fyrir jólin. MYND FACEBOOK
Fullkomið fjölskylduverkefni fyrir jólin. MYND FACEBOOK

Verkefnið „Jól í skókassa“ er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Ladies Circle í Skagafirði tekur á móti pökkum fyrir góðgerðarverkefnið „Jól í skókassa“ og í ár verður tekið á móti kössum í Safnaðarheimilinu á Sauðárkóki mánudaginn 30. október nk. milli klukkan 17:00 og 20:00. Kassarnir eiga að vera tilbúnir til afhendingar þegar þeim er skilað inn. 

Fyrir jólin 2004 ákvað hópur ungs fólks innan KFUM & KFUK að láta reyna á verkefnið hér á landi. Undirtektirnar voru frábærar og söfnuðust rúmlega 500 kassar það árið. Verkefnið hélt svo áfram að spyrjast út og árið 2005 urðu skókassarnir 2600. Sú tala hefur síðan tvöfaldast því undanfarin ár hafa borist í kringum 5000 gjafnir. Skókassarnir eru sendir til Úkraínu og í fyrra fóru 5.575 gjafir frá Íslandi og það var með því allra mesta sem farið hefur héðan.

Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa. Stundum vill það vefjast fyrir fólki hvað skal setja í kassana, hérna er ágætur listi yfir hvað má fara og ekki má fara.

Í kassann skal setja a.m.k. einn hlut úr hverjum eftirtalinna flokka:

Leikföng, t.d. litla bíla, bolta, dúkku, bangsa,eða jó-jó. Athugið að láta auka rafhlöður fylgja rafknúnum leikföngum.

Skóladót, t.d. penna, blýanda, yddara, strokleður, skrifbækur, liti, litabækur eða vasareikni.

Hreinlætisvörur, óskað er eftir því að allir láti tannbusta, tannkrem og sápustykki í kassann sinn. Einnig má setja greiðu, þvottapoka eða hárskraut.

Sælgæti, t.d. sleikjó, brjóstykur, pez, tyggjó eða karmellur.

Föt, t.d. húfu, vettlinga, sokka, trefil, bol eða peysu.

Síðan er það listinn yfir það sem ekki má fara:

Mikið notaðir eða illa farnir hlutir

Matvara

Stríðsdót, t.d. leikfangabyssur, leikfangahermenn eða hnífar.

Vökvar, t.d. sjampó krem eða sápukúlur.

Lyf, t.d. sjampó, krem eða sápukúlur

Borthættir hlutir, t.d. speglar eða postulínsdúkkur.

Spilastokkar, þar sem spilastokkar eru dengdir fjárhættuspilum í Úkraínu, er óskað eftir því að þeir séu ekki gefnir í skókassana.

Frágangurinn á kassanum er mikilvægur hluti, finnið tóman skókassa og pakkið honum inn í jólapappír. Athugið að pakka lokinu sérstaklega inn þannig að hægt sé að opna kassann. Hægt er að nálgast skókassa í skóbúðum og mælt er með að fólk tryggi sér kassa í tæka tíð.  Ákveða þarf hvort gjöfin sé ætluð fyrir stelpu eða strák og hvaða aldur gjöfin er ætluð: (3-6), (7-10), (11-14) eða (15-18). 
Setjið 500-1.000 krónur efst í kassann. Peningurinn er fyrir kostnaði sem fylgir verkefninu. Lokið kassanum með því að setja teygju utan um hann. Fleiri almennar upplýsingar má finna HÉR.  

Einnig er móttaka fyrir gjafir í Hólaneskirkju fyrir Skagaströnd og nágrenni, föstudaginn 3. nóvember. Nánari upplýsingar um tímasetningar og móttökustaði á landinu öllu má finna HÉR.

 

 

 

 

 

 

 



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir