Kristín Sigurrós ráðin í starf forstöðumanns Héraðsbókasafns Skagfirðinga

Stína kampakát með ráðninguna ... nei, þetta er nú örfárra ára gömul mynd af Stínu sem sat þá fyrir í þætti Fröken Fabjúlöss í JólaFeyki. MYND: GUNNHILDUR GÍSLA
Stína kampakát með ráðninguna ... nei, þetta er nú örfárra ára gömul mynd af Stínu sem sat þá fyrir í þætti Fröken Fabjúlöss í JólaFeyki. MYND: GUNNHILDUR GÍSLA

Kristín Sigurrós Einarsdóttir hefur verið ráðin í starf forstöðumanns Héraðsbókasafns Skagfirðinga en hún tekur við starfinu af Þórdísi Friðbjörnsdóttur sem mun láta af starfi forstöðumanns í sumar. Í frétt á vef Skagafjarðar kemur fram að starf forstöðumanns felur í sér allt sem viðkemur starfsemi bókasafns svo sem rekstur, mannaforráð, gerð fjárhagsáætlana, innkaup, grisjun, stjórnun, skipulag safnkennslu, umsýslu og fleira. Forstöðumaður kemur fram fyrir hönd safnsins og sér um kynningarmál þess, skipuleggur þjónustu safnsins og leiðir faglega starfsemi þess.

„Kristín lauk mastersgráðu vorið 2022 á menntavísindasviði Háskólans á Akureyri, þar sem hluti af náminu voru námskeið um upplýsingatækni. Einnig hefur Kristín lokið B.Ed. gráðu í kennarafræðum og fjöldanum öllum af símenntunarnámskeiðum sem mörg hver voru á sviði kennslu, bókmennta og upplýsingatækni. Einnig hefur hún lokið svæðisleiðsögunámi, bæði á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum.

Kristín hefur starfað sem forstöðumaður Héraðsbókasafns Strandasýslu, sem er bæði almennings- og skólabókasafn, en í dag starfar hún sem verkefnastjóri hjá Héraðsskjalasafni Skagfirðinga. Kristín hefur þar fyrir utan umtalsverða starfsreynslu í upplýsinga- og safnageiranum sem og ýmiskonar verkefna- og viðburðastjórnun.“

Þá má ekki gleyma því að Kristín starfaði um árabil sem blaðamaður á Feyki. Við óskum Stínu til hamingju með forstöðumannstitilinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir