Kvennakórinn Sóldís á Blönduósi í kvöld

Kvennkórinn Sóldís söng við kynningu Þilsaþyts á hátíðarbúningi sem afhentur var Svf. Skagafirði sl. föstudag. Mynd: PF.
Kvennkórinn Sóldís söng við kynningu Þilsaþyts á hátíðarbúningi sem afhentur var Svf. Skagafirði sl. föstudag. Mynd: PF.

Nú birtir á ný, segja söngkonur Sóldísar sem koma nú fram á ný eftir Covid-frí undanfarin misseri. Á sunnudagskvöldið, í upphafi Sæluviku, hélt kórinn tónleika í Miðgarði þar sem vel var mætt og stemningin góð. Í kvöld halda kórkonur til Blönduóss þar sem efnt verður til tónleika í Blönduóskirkju kl. 20.

Ekki verður krafist aðgangseyris en tekið verður á móti frjálsum framlögum í orgelsjóð kirkjunnar.

Stjórnandi er Helga Rós Indriðadóttir, meðleikari er Rögnvaldur Valbergsson og einsöngvarar eru þær Ólöf Ólafsdóttir, Íris Olga Lúðvíksdóttir og Helga Rós Indriðadóttir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir