Lokað fyrir aðgengi að Fosslaug og Reykjafossi af margþættum ástæðum
Lokað hefur verið fyrir aðgengi að Fosslaug og Reykjafossi. Dagur Torfason, landeigandi að Fosslaug og Reykjafossi, gaf frá sér yfirlýsingu á Facebook þar sem hann sagði frá ákvörðuninni. Bæði laugin og fossinn hafa verið vinsælir ferðamannastaðir en landið er nærri Varmahlíð.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Brjálað að gera í útköllum | Hafdís Einarsdóttir skrifar
Síðustu þrjár vikur hafa verið annasamar hjá Björgunarsveitinni Skagfirðingasveit. Á þeim tíma hefur sveitin verið kölluð út fjórum sinnum og í fimmta sinn rétt áður en undirrituð ýtti á send-takkann til fréttamiðils [um kl. 21 í gærkvöldi]. Verkefnin fimm sýna vel hversu fjölbreytt hlutverk björgunarsveita er og hversu mikilvægt það er að vera ávallt tilbúin þegar kallið kemur.Meira -
Húsnæðiserfiðleikar ungs fólks innan ESB | Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 03.07.2026 kl. 08.20 oli@feykir.isFyrirsögnin hér að ofan er sú sama og á skýrslu Eurofound, stofnunar á vegum Evrópusambandsins sem fjallar meðal annars um húsnæðismál. Skýrslan kom út í desember síðastliðnum og er þar dregin upp vægast sagt dökk mynd af stöðu þeirra mála innan sambandsins og sérstaklega í tilfelli ungs fólks. Til að mynda kemur fram að mikill og vaxandi skortur sé á íbúarhúsnæði og húsnæðisverð fyrir vikið hækkað mikið. Að meðaltali um 50% en í ýmsum ríkjum þess þrefaldast. Á sama tíma hefðu laun ekki fylgt þeirri þróun. Það ætti einkum við um ung fólk sem væri gjarnan bæði á lágum launum og í óöryggri vinnu sem þýddi að það ætti oft erfitt með að standast greiðslumat og að safna fyrir hárri útborgun sem tekið gæti mörg ár.Meira -
Elísa Bríet á fullu með U19 landsliðinu
„Ég er stödd í Sarajevo, höfuðborg Bosníu og Hersegóvínu. Það er mjög heitt og búið að vera sól og 30+ gráður alla dagana hingað til,“ segir Skagstrendingurinn Elísa Bríet Björnsdóttir sem er að spila með íslenska U19 landsliðinu í knattspyrnu en liðið spilar undir stjórn Donna þjálfara.Meira -
Aðsókn á bókasafnið á Króknum eykst milli ára
„Það er ánægjulegt að greina frá því að fjölgun gesta á Héraðsbókasafni Skagfirðinga, fyrri hluta ársins 2026 á Sauðárkróki, er tæp 10% miðað við fyrri hluta ársins í fyrra,“ segir í frétt á heimasíðu Skagafjarðar en gestum safnsins á Króknum hefur fjölgað alla mánuði ársins milli ára en mest þó í maí og júní. Árið 2025 komu 4.086 gestir á fyrri hluta ársins, en í ár eru gestirnir 4.477 sem er fjölgun um rúm 9,5%.Meira -
Mótaröð Pílukastfélags Skagafjarðar komin á fullt
Pílukastfélag Skagafjarðar hélt á dögunum annað mótið í sumarmótaröð sinni. Í mótaröðinni eru sjö mót þar sem spilaðir eru 501 SIDO, 301 DIDO, 1001 SISO, Cricket eða Chicago-leikir. Einnig eru veitt alls kyns verðlaun og gefin stig fyrir árangur. Í júlí verða tvö mót, nánar til tekið dagana 21. og 28. júlí.Meira
