Loftgæði í ráðhúsi Húnaþings vestra langt undir viðmiðum

Ráðhús Húnaþings vestra á Hvammatanga. MYND AF NETINU
Ráðhús Húnaþings vestra á Hvammatanga. MYND AF NETINU

Húnahornið segir frá því að á fundi umhverfis-, veitu og framkvæmdaráðs Húnaþings vestra hafi á dögunum verið farið yfir loftgæðaathugun sem gerð var í Ráðhúsi sveitarfélagsins. Niðurstöður sérfræðinga sýna alvarlegt ástand í kjallara og á fyrstu hæð hússins.

„Þar mælast loftgæði langt undir viðmiðum og benda til verulegrar mengunar sem krefst frekari rannsókna og úrbóta. Loftgæði á efri hæð ráðhússins virðast innan marka, þó sérfræðingar telji þörf á nánari skoðun til að tryggja að þar sé ekki falin uppspretta vandans.“

Lagði ráðið til að starfsemi ráðhússins verði flutt tímabundið úr húsinu á meðan beðið er eftir niðurstöðum úr frekari rannsóknum og brugðist hefur verið við ábendingum sérfræðinga. Starfsemin verður því flutt í Félagsheimilið Hvammstanga þar til fullnægjandi öryggi og loftgæði hafa verið tryggð í ráðhúsinu.

Fleiri fréttir