Fyrsti dagur í sköfun

Starfsmaður á Tengli skefur framrúðu vinnubílsins nú í morgun. MYND: ÓAB
Starfsmaður á Tengli skefur framrúðu vinnubílsins nú í morgun. MYND: ÓAB

Feykir ætlar kannski ekki að sverja fyrir að þessi staðreynd eigi við allsstaðar á Norðurlandi vestra en í það minnsta á Króknum þá var morguninn það kkaldur og bjartur að flestir hafa sennilega þurft að leita að rúðusköfunni áður en farið var af stað á bílnum í fyrsta sinn þetta haustið. Nema að sjálfsögðu þeir sem búa svo vel að vera á bíl sem hitar upp sæti og afhéla rúður áður en bíllinn er settur í gang.

Þetta er nú vanalega ekki vinsælt og mörgum leiðist að skafa. Sumir gera bara pínu gat í hélaða framrúðu og fara þannig af stað en Feykir mælir ekki með því og lögreglan sennilega ekki heldur. Sköfum því vel.og sköfum með stolti.

Sem fyrr segir er morguninn bjartur og fagur en hiti á Norðurlandi vestra í kringum frostmark. Það virðist þó vera heldur kaldara í Skagafirði en í Húnavatnssýslunum. Færð er góð en varað er við hálku í Út-Blönduhlíð, Óslandshlíð og Hegranesi eða í austanverðum Skagafirði.

Það hlýnar þegar líður á daginn og gæti rokið upp í átta gráður eða svo um miðjan dag. Það má reikna með að hiti verði sæmilega yfir frostmarki næstu daga og alla jafna stillt.

Fleiri fréttir