Nemendur GaV áttu skemmtilegan dag í Fljótunum
Það er ýmislegt brallað í skólunum annað en að leggjast yfir bækur og hefðbundið námsefni. Á heimasíðu Grunnskólans austan Vatna segir frá því að í gær, mánudaginn 16. nóvember, fóru nemendur á miðstigi í skemmtilega og fróðlega vettvangsferð í Fljótin. „Á dagskrá voru tvær áhugaverðar heimsóknir þar sem nemendur fengu bæði að fræðast og upplifa ýmislegt nýtt,“ segir í fréttinni.
Svo segir: „Fyrsti viðkomustaður var Skeiðsfossvirkjun þar sem Sigtryggur Kristjánsson tók vel á móti okkur og fræddi nemendur um starfsemi virkjunarinnar. Heimsóknin var sérstaklega áhugaverð þar sem við höfum undanfarið verið að læra um orku og vatnsaflsvirkjanir í náttúrufræði. Það var því frábært tækifæri fyrir nemendur að sjá með eigin augum hvernig það sem við höfum lært í skólastofunni tengist raunveruleikanum og dýpka þannig skilning sinn á viðfangsefninu.
Að heimsókninni lokinni lá leið okkar í Haganesvík þar sem tveir frábærir starfsmenn tóku hlýlega á móti okkur. Þar fengum við að fræðast um sögu staðarins og skoða glæsilegt hljóðver á vegum Deplar Farm. Heimsókninni lauk svo á notalegum nótum þegar okkur var boðið upp á heitt súkkulaði og köku við mikla ánægju nemenda.“
Fram kemur að ferðin hafi heppnast einstaklega vel og alls staðar hafi verið tekið á móti hópnum af mikilli hlýju og gestrisni. Við viljum koma á framfæri innilegu þakklæti til allra sem tóku á móti okkur, fræddu okkur og gerðu daginn svona eftirminnilegan. Ekki má heldur gleyma frábæra rútubílstjóranum okkar sem sá til þess að ferðalagið gekk eins og í sögu!
Nemendur komu heim reynslunni ríkari eftir skemmtilegan dag í Fljótunum.
