Opinn samráðsfundur á Skagaströnd vegna Spákonufellshöfða

Spákonufellshöfði fremst en Spákonufell í bakgrunni. MYND AF VEF SKAGASTRANDAR
Spákonufellshöfði fremst en Spákonufell í bakgrunni. MYND AF VEF SKAGASTRANDAR

Í kvöld, þann 7. apríl, standa sveitarfélagið Skagaströnd og Umhverfisstofnun að opnum samráðsfundi vegna gerðar stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir fólkvanginn Spákonufellshöfða. Fundurinn verður í félagsheimilinu Fellsborg á Skagaströnd og hefst kl. 20:00.

F U N D A R D A G S K R Á :

20:00 - 20:30 Kynning á stöðunni
Hvað er stjórnunar- og verndaráætlun?
Hvar erum við stödd í ferlinu?
Hvernig nýtist stjórnunar- og verndaráætlun fyrir fólkvanginn?

20:30 - 21:00 Hópavinna og umræður - Viðfangsefni:
Hvaða gildi hefur Spákonufellshöfði fyrir þig?
Hvernig vilt þú sjá Spákonufellshöfða í framtíðinni?
Hvað þarf að gera til þess?
Hugmyndir að leiðarljósi fyrir stjórnunar- og verndaráætlun.

21:00 - 21:15 Kaffihlé

21:15 - 21:45 Áframhaldandi hópavinna

21:45 - 22:00 Samantekt og fundarslit

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir