Réttardagar á Norðvesturlandi | Haustverkin að byrja

frá Silfrastaðarétt. Mynd: HMJ
frá Silfrastaðarétt. Mynd: HMJ

Nú er stutt í að sauðfjárbændur fari að flykkjast um fjöll og heiðar í leit að sauðfé sínu. Fyrir mörgum er þetta mesta fjörið sem fylgir búskapnum. Bændablaðið tekur árlega saman lista yfir réttir landsins og er leitað í hann hér auk þess sem bætt hefur verið við upplýsingum af heimasíðu Skagafjarðar.

HÚNAVATNSSÝSLUR

  • Auðkúlurétt við Svínavatn, Austur-Húnavatnssýslu, 5. sept. kl. 9, seinni réttir 21. sept. kl. 13.
  • Beinakeldurétt, Austur-Húnavatnssýslu, 30. ágúst, seinni réttir 21. sept. kl. 13.
  • Fossárrétt, Austur-Húnavatnssýslu, 12. sept., seinni réttir 19. sept.
  • Hamarsrétt á Vatnsnesi, Vestur-Húnavatnssýslu, 12. sept.
  • Hlíðarrétt, Austur-Húnavatnssýsla, 5. sept. kl. 16, seinni réttir 20. sept. kl. 16.
  • Hrútatungurétt í Hrútafirði, Vestur-Húnavatnssýslu, 5. sept. kl. 9.
  • Hrútafjörður að vestan / Bæjarhreppur, 12. sept.
  • Hvalsárrétt í Hrútafirði, Strandasýslu, 12. sept.
  • Hvammsrétt í Langadal, Austur-Húnavatnssýslu, 29. ágúst.
  • Kjalarlandsrétt, Austur-Húnavatnssýsla, 12. sept., seinni réttir 19. sept.
  • Miðfjarðarrétt í Miðfirði, Vestur-Húnavatnssýslu, 5. sept.
  • Rugludalsrétt í Blöndudal, Austur-Húnavatnssýslu, 29. ágúst.
  • Skrapatungurétt í Laxárdal, Austur-Húnavatnssýslu, 6. sept. kl. 9, seinni réttir 20. sept. kl. 9.
  • Spákonufellsrétt, Austur-Húnavatnssýslu, föstudaginn 11. sept., seinni réttir 3. okt.
  • Stafnsrétt í Svartárdal, Austur-Húnavatnssýslu, 12. sept. kl. 8:30, seinni réttir 19. sept. kl. 16.
  • Sveinsstaðarétt, Austur-Húnavatnssýslu, 10. sept. kl. 10, seinni réttir 21. sept. kl. 9.
  • Undirfellsrétt í Vatnsdal, Austur-Húnavatnssýslu, 4. sept. kl. 13 og 5. sept. kl. 8, seinni réttir 21. sept. kl. 11.
  • Víðidalstungurétt í Víðidal, Vestur-Húnavatnssýslu, 5. sept. kl. 10.
  • Valdarárrétt í Víðidal, Vestur-Húnavatnssýslu, 4. sept. kl. 9.
  • Þverárrétt í Vesturhópi, Vestur-Húnavatnssýslu, 12. sept.

SKAGAFJÖRÐUR

  • Árhólarétt í Unadal, 12. sept.
  • Deildardalsrétt í Deildardal, 12. sept.
  • Hlíðarrétt í Vesturdal, fyrri göngur 13. sept. kl. 9, seinni göngur 4. okt. kl. 10.
  • Holtsrétt í Fljótum, 12. sept.
  • Kleifnarétt, 10. sept.
  • Laufskálarétt, 6. sept.
  • Minni-Reykja rétt í Flókadal, 19. sept.
  • Mælifellsrétt, 6. sept.
  • Sauðárkróksrétt, 5. sept.
  • Selnesrétt, 12. sept.
  • Silfrastaðarétt í Blönduhlíð, 14. sept.
  • Skarðarétt, fyrri réttir 6. sept. kl. 9, seinni réttir 19. sept.
  • Skarðsárrétt, 4. september
  • Staðarrétt (Reynisstaðarrétt), 6. sept. kl. 11
  • Stafnsrétt, 12. sept.
  • Stíflurétt í Fljótum, 11. sept.

Nú er um að gera fyrir bændur og búalið að fara að dusta rykið af gangnadressinu.

/Birt með fyrirvara um villur og ónákvæmni

Fleiri fréttir