Sjö teymi taka þátt í Startup Storm

Hópurinn sem tekur þátt. MYND AÐSEND
Hópurinn sem tekur þátt. MYND AÐSEND

Sjö nýsköpunarteymi af Norðurlandi hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðalinn Startup Storm sem hefst 4. október næstkomandi. Startup Stormur er sjö vikna hraðall fyrir græn verkefni á Norðurlandi, þar sem þátttakendur fá tækifæri til að efla sig og sín fyrirtæki og vaxa með vindinn í bakið.

Þetta er í þriðja sinn sem Norðanátt heldur viðskiptahraðal fyrir frumkvöðla og fyrirtæki á Norðurlandi.Startup Stormur er sjö vikna viðskiptahraðall fyrir græn verkefni á Norðurlandi. Dagskráin er hönnuð með þarfir þátttakenda í huga en á þessu sjö vikna tímabili munu teymin hitta reynslumikla leiðbeinendur og stjórnendur fyrirtækja frá öllu landinu, sitja vinnustofur og fræðslufundi og mynda sterkt tengslanet sín á milli.

Hraðallinn er frjór vettvangur til að þróa hugmyndir sínar og vörur, læra um rekstur fyrirtækja, markaðssetningu, undirbúa fjármögnun og margt fleira. Markmiðið er að hjálpa teymunum að vaxa hratt á þessum sjö vikum og á þeirra forsendum.

Í ár eru þrjú fyrirtæki frá Norðurlandi eystra sem taka þátt og fjögur frá Norðurlandi vestra.

Þátttakendur í Startup Stormur 2023:

3D Lausnir - Hringrása steypa og þrívíddarprentun.
Vallhumall - Gamalkunn íslensk lækningajurt, sem hér fær plantan nýtt hlutverk sem bragðefni í matvælaframleiðslu.

Rækta microfarm - Minnkum kolefnisspor og drögum úr innflutningi og matarsóun - Rækta Microfarm er umhverfisvæn framleiðsla á grænsprettum, sælkerasveppum og hampblómum.

Ró heilsa - Hampurinn heillaði okkur og hvað hann getur gert, við fórum því af stað með Ró CBD.

 

Ísponica - Ræktun grænmetis og kryddjurta með aquaponics (afrennsli fiskeldis) lóðréttri búskap. Markmiðið er að rækta mat innandyra, allt árið um kring með áherslu á sjálfbæra framleiðslu.

Sigló Sea - Sustainable sea seaweed farming/harvesting and mussel farming and community based tourism development.

Kvörn - Kvörn Kaffibrennsla í Skagafirði, nýbrennt og ferskara kaffi

Þetta kemur frá í fréttatilkynningu frá Eimi og nánar má lesa um verkefni HÉR.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir