Sýningaropnun í Hillebrandtshúsi

Listsýningin Heima/Home verður opnuð í Hillebrandtshúsinu á Blönduósi, laugardaginn 2. september kl. 14:00. Um er að ræða samsýningu fjölda áhuga- og atvinnulistafólks á norðvesturlandi þar sem útgangspunkturinn er hvað HEIMA stendur fyrir. Boðið verður upp á léttar veitingar og lifandi tónlist. Allir eru hjartanlega velkomnir!

Einnig er minnt á markað í Krúttinu sem haldinn verður á milli kl. 14 og 17 sama dag - hér er kjörið tækifæri til að eiga góða stund saman í gamla bænum og njóta þess sem þar er boðið upp á!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir