Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði fór fram í Hrútafirði

Þátttakendur á ráðstefnunni á Reykjum. MYND AF VEF UMFÍ
Þátttakendur á ráðstefnunni á Reykjum. MYND AF VEF UMFÍ

Um liðna helgi fór fram ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði sem Ungmennaráð UMFÍ stóð fyrir en ráðstefnan var haldin í húsnæði Skólabúðanna á Reykjum í Hrútafirði. Umfjöllunarefnið á ráðstefnunni voru umhverfis- og loftslagsmál og voru endurnýting, umhverfisspor fyrirtækja og neytenda og fleira í þeim dúr ofarlega á baugi.

Um 70 þátttakendum var boðið til leiks, þar á meðal ungmennaráðum sveitarfélaga og félagasamtaka á borð við Slysavarnafélagið Landsbjörgu.

Fjölmargir gestir komu á ráðstefnuna. Á laugardag komu þeir Sævar Helgi Bragason, sem margir þekkja sem Stjörnu-Sævar, og Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun sem stýrði málstofu fyrir þátttakendum um umhverfisspor og pælingar hvað neytendur geta gert til að minnka spor sitt.

Á sunnudag mættu þingmenn og sveitastjórnarfólk á ráðstefnuna og tóku þau þátt í kaffihúsasamræðum um málefnið. Þar á meðal voru Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, og María Rut Krstinsdóttir, aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar, Píratarnir Björn Leví Gunnarsson og Gísli Rafn Ólafsson, Ingibjörg Isaksen, þingkona Framsóknarflokksins, og Steinar Ingi Kolbeins, aðstoðarmaður umhverfisráðherra. Auk þeirra tóku Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, og Málfríður Sigurhansdóttir, stjórnarkona í UMFÍ, þátt í kaffispjallinu.

„Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði hefur verið haldin árlega síðan árið 2009 og hefur hún fest sig í sessi sem einn af mikilvægustu viðburðunum fyrir ungt fólk á Íslandi. Á ráðstefnunni er ævinlega lögð áhersla á að efla lýðræðilega þátttöku ungs fólks og þátttakendum gefin tól og ráð til að styrkja ímynd sína og gera þeim betur en áður kleift að taka upplýstar ákvarðanir um líf sitt og lífsstíl,“ segir í frétt á vef UMFÍ.

Heimild: umfi.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir