Grafin gæs og hreindýrasteik
Villibráðin er þema vikunnar hjá Ingunni Maríu Björnsdóttur og Sighvati Steindórssyni á Blönduósi sem voru matgæðingar Feykis árið 2009.
Grafin gæs
Bringurnar huldar í grófu salti í ca 3 klst. Saltið síðan skolað af með vatni og bringurnar síðan þerraðar.
Krydd blanda:
- 1 hluti sinnepsfræ
- 1 - basil
- 1 - timian
- 1 - rósmarin
- 1 - salt
- 1 - svartur pipar
- ½ - oregano
- 1 - sykur
- 1 - dillfræ
- 1 - rósapipar
Bringurnar þaktar í kryddblöndunni og geymdar í kæli í 2 sólahringa. Gott er að frysta bringurnar áður en þær eru sneiddar svo betra sé að sneiða þunnar sneiðar.
Sósa:
- 4 msk bláberjasulta
- 1 msk hvítvínsedik
- Sinnepsfræ (má sleppa)
Einföld og góð uppskrift af hreindýrasteik
- Hreindýravöðvi
- Villibráðakrydd (prima)
- Villijurtir (pottagaldrar)
- Salt
- Olía
- Smjör til steikingar
Villibráðarkryddi og villijurtum blandað saman. Smá olía sett saman við kryddið og síðan penslað á kjötið. Smjör og olía hitað saman á pönnu. Þegar pannan er orðin snarpheit þá er kjötið brúnað á báðum hliðum og sett í eldfast mót. Smá salti stráð yfir kjötið og síðan sett inn í ofn á 180° í ca 13 mín. Tíminn fer þó eftir þykkt vöðvans. Ef notaður er kjöthitamælir þá er kjötið eldað þar til mælirinn sýnir 48 til 50°. Láta kjötið standa í nokkrar mín áður en það er skorið.
Sósa:
- Smjör
- Hveiti
- Mjólk eða rjómi
- Villibráðarkraftur
- Villijurtir
- Salt
- Rifsberjasulta
Sósan bökuð upp og smökkuð til.
Bakaðar kartöflur
Kartöflur settar í eldfastmót og vel af grófu salti stráð yfir. Lok sett á formið eða álpappír. Formið sett inn í ofn í 50 mín á 180°C
Annað meðlæti eftir smekk hvers og eins.
Döðluterta
- 1 bolli saxaðar döðlur
- 100 gr saxað suðusúkkulaði
- ½ bolli sykur
- ½ bolli hveiti
- 2 stk egg
- 1 tsk lyftiduft
- 1 tsk vanilludropar
Öllu blandað saman, sett í eldfast mót og inn í ofn í 25 mín við 180°.
Borið fram með þeyttum rjóma og góðu kaffi
Verði ykkur að góðu
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.