Kjúklingasalat, piparsósa og túnfisksalat án samviskubits

Matgæðingarnir Margrét Eik og Ingvar Óli. Aðsend mynd.
Matgæðingarnir Margrét Eik og Ingvar Óli. Aðsend mynd.

„Vinsælustu réttirnir á okkar heimili eru mjög einfaldir og ódýrir, það er sennilega það besta við þá. Fyrsta uppskriftin er piparsósa, sem er alltaf gott að eiga til staðar. Þetta er sennilega uppáhaldssósan okkar heima vegna þess hve auðvelt er að búa hana til og hversu góð hún er. 
Svo ætlum við að gefa ykkur uppskrift af mjög hollu túnfisksalati sem er búið að sigra heimilið, öllum finnst þetta gott og það er virkilega einfalt að búa til. Okkur finnst best að bera túnfisksalatið fram með hrökkexi eða bara venjulegu Ritz kexi. Þetta salat er líka mjög fínt í túnfisksamloku.
Og ef við ættum að velja uppáhalds aðalrétt þá væri það sennilega heitt kjúklingasalat sem Margrét eldar af og til, nokkurn veginn spariréttur því hann er svo góður. Við eigum tvö börn og þau eru mjög hrifin af þessum rétti og það sem mér finnst best er að þau eru að borða mjög hollan mat," sögðu Ingvar Óli Ólafsson og Margrét Eik Guðjónsdóttir á Hvammstanga sem voru matgæðingar vikunnar í 8. tbl. Feykis 2017.

Piparsósa

  • hálfur laukur, saxaður í litla bita
  • 2 sneiðar beikon, sneitt í bita
  • 2 dl rauðvín
  • 1 grein af blóðbergi
  • 1 grein af rósmarin
  • 1 tsk svört piparkorn, brotin niður (eða grófmalaður pipar)
  • 500 ml vatn (eftir smekk og styrkleika)
  • 1 tsk kjúklingakraftur
  • 1 tsk nautakraftur
  • ½ tsk sjávarsalt
  • sósulitur og sósuþykkni eftir smekk

Aðferð: 
Laukur, piparkorn og beikon steikt upp úr olíu í heitum potti í sirka 2 mínútur og þá er rauðvíni bætt við, gott er að taka pottinn af hita í smá stund til þess að forðast mikla gufu af rauðvíninu. Næst er blóðbergi og rósmarin bætt við, látið malla í sirka 3-5 mínútur í viðbót eða þar til rauðvínið rétt þekur botninn á pottinum. Þá er vatninu bætt við, svo kjúklinga- og nautakrafti, sjávarsalti og sósulit. Gott er að sigta sósuna á þessum tímapunkti í annan pott, sjóðið svo í um 5 mín, bætið svo sósuþykkni við og takið pottinn af hita. Sósan er þá tilbúin.

Satey kjúklingasalat

  • 2 kúklingabringur, stórar
  • ½ pakki kúskús með sólþurrkuðum tómötum
  • 1 dós Satey sósa (Blue dragon)
  • 250 g ferskt spínat
  • 1 avokado, skorið í bita
  • 200 g kirsuberjatómatar, skornir í bita
  • 100 g salthnetur
  • ½ - 1 krukka fetaostur í kryddolíu
  • Sjávarsalt og grófmalaður pipar

Aðferð:
Kúskús er eldað samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Skerið kjúklingabringurnar í bita og steikið á pönnu með sjávarsalti og pipar. Hellið síðan Satay sósunni saman við og látið malla í smá stund. Setjið spínat í botninn á eldföstu móti og smyrjið síðan kúskúsi yfir spínatið. Hellið þá kjúklingnum og sósunni yfir kúskúsið og dreifið avokadoinu, tómötunum, hnetunum og fetaostinum yfir. Réttinn er hægt að bera fram hvort heldur sem er heitan eða kaldan. 

Túnfisksalat

  • 1 ds. túnfiskur í vatni
  • ½ ds. sýrður rjómi
  • ½ ds. kotasæla
  • ½ paprika
  • ½ avokado
  • ½ rauðlaukur
  • 1 tsk sjávarsalt
  • 1 tsk laukduft
  • grófmalaður pipar á hnífsoddi

Aðferð:
Byrjið á því að skera allt grænmeti í litla bita. Blandið sýrðum rjóma og kotasælu saman í skál. Hellið vatninu af túnfisknum og bætið honum út í. Bætið öllu grænmeti við og hrærið saman. Kryddið og borðið með hrökkbrauði eða kexi án nokkurs samviskubits. Einnig er gott að nýta salatið í samlokur.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir