Rabb-a-babb 141: Sigríður Kristín

Nafn: Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir.
Árgangur: 1956.
Fjölskylduhagir: Gift frú.
Búseta: Sauðárkrókur.
Hverra manna ertu og hvar upp alin/n: Ég er fædd og uppalin í Garði í Mývatnssveit. Faðir minn hét Þorgrímur Starri Björgvinsson bóndi þar í sjötta lið. Móðir mín var Jakobína Sigurðardóttir skáldkona frá Hælavík á Hornströndum.
Starf / nám: Sagnfræðingur og kennari, en starfa nú sem sérfræðingur á Byggðastofnun.
Hvað er í deiglunni: Vinna og aftur vinna! Og skriftir í hjáverkum.

Hvernig nemandi varstu? Óttalega hrædd lítil mús, en sótti í mig veðrið með tímanum.

Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum?
 Hárgreiðslan hennar systur minnar sem ég var í laumi hund-óánægð með. Hún setti rúllur í hárið á mér og túberaði það og mér fannst það kellingarlegt, vildi slöngulokka. En vildi ekki særa stóru systur.

Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? 
 Geimfari, flugmaður eða kafari. Ég las mest strákabækur, Bob Moran, Tom Swift og svoleiðis. Fyrir utan Enid Blyton sem ég elskaði en er núna á bannlista pólitískrar rétthugsunar.

Hvað var uppáhalds leikfangið þitt þegar þú varst krakki? Gulur bangsi sem ég man ekki hvað hét, en ég var alltaf að klippa hárið á honum og trúði því staðfastlega að það yxi aftur.

Besti ilmurinn? Nýslegið tún

Hvað varstu að hlusta á þegar þú fékkst bílprófið (hver var uppáhaldstónlistin þín þegar þú varst u.þ.b. 17 ára)? Ég var reyndar 19 ára þegar ég tók prófið. Og það var árið 1975 og ég hef trúlega hlustað á hljómsveitir á borð við Nazaret, Deep Purple, Led Zeppelin. Ég var aldrei forfallinn Abba-aðdáandi.

Hvaða lag er líklegast að þú takir í Kareókí? Ertu vitlaus! Ég tæki einu sinni ekki lag í kareókí þótt ég væri á sjötta glasi. Nema þá í dúett með einhverjum.

Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)? Góðum glæpaseríum.

Besta bíómyndin? Kannski réttast að spyrja hvaða mynd ég sá oftast (fór oft á sömu myndina í gamla daga) og það myndi vera Cabaret með Lizu Minelli.

Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Árna Stef.

Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? 
 Skipulegg.

Hvert 
er snilldarverkið þitt í eldhúsinu?  Franska súkkulaðikakan.

Hættulegasta helgarnammið? Rjómaterta með marengs!

Hvernig er eggið best? Harðsoðið eða hrært (scrambled)

Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Undanlátssemin.

Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? 
 Óheiðarleiki.

Uppáhalds málsháttur eða tilvitnun?  
 Svo verður hver að fljúga sem hann er fiðraður.

Hver er elsta minningin sem þú átt? Þegar ég strauk að heima tveggja og hálfs.

Hvaða teiknimyndapersóna höfðar mest til þín? 
 Hrúturinn Hreinn.

Hvaða fræga manneskja mundir þú helst vilja vera (og af hverju)? Ég hef ekki heilsu í frægð. En ég væri alveg til í smá lúxus sem frægðinni fylgir ef ég má losna við frægðina.

Hver er uppáhalds bókin þín og/eða rithöfundur (og af hverju)?  Svo ótal margar. Kannski Meistarinn og Margaríta eftir Mikhaíl Búlgakov. Hún er svo margræð og frásögnin skemmtileg, en um leið sorgleg.

Orð eða frasi sem þú notar of mikið? Ég er frasalógían uppmáluð svo það er erfitt að gera upp á milli.

Hver var mikilvægasta persóna síðustu 100 ára að þínu mati? 
 Bríet Bjarnhéðinsdóttir, brautryðjandi í kvenréttindum (nú hugsa ég bara um Ísland).

Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færirðu? Líklega eitthvert á níunda áratuginn, þá var svo gaman.

Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Henni féll aldrei verk úr hendi.

Framlenging:

Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu...
  Erfitt val, ég á svo margt óskoðað. Hef varla komið út fyrir Evrópu.

Ef þú ættir að dvelja alein/n á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér? 
Mér finnst blasa við að hafa með sér eitthvert samskiptatæki sem virkar, bát og verkfæri (þori ekki að segja eiginmanninn, því hann er jú ekki hlutur). 

Nefndu eitthvað þrennt sem þér finnst þú mega til að gera áður en þú gefur upp öndina: Setjast niður í næði í nokkra daga og hugsa um tilgang lífsins, það er eiginlega mest aðkallandi þessa stundina. Skrifa nokkrar bækur (þetta er miklu fleira en þrennt) og ferðast um heiminn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir