Rabb-a-babb 185: Gústi Kára

Lestin fyllt á fínum stað.
Lestin fyllt á fínum stað.

Nafn: Ágúst Kárason.
Árgangur: 1964.
Fjölskylduhagir: Sambýliskona, fjögur börn og tvö barnabörn.
Búseta: Reykjavík, Meistaravellir, Vesturbær.
Hverra manna ertu og hvar upp alinn: Foreldrar eru Gerður Geirsdóttir (Geir og Inga, Brekkukoti í Blönduhlíð) og Kári Steindórsson (Steindór og Fjóla á Hólmagrund 7 Sauðárkróki). Fæddur og uppalinn á Sauðárkróki og Brekkukoti Blönduhlíð.
Starf / nám: Jeppa bílstjóri og leiðsögumaður til fjalla og jökla undanfarin 10+ ár. Grunnskólapróf og fjöldi námskeiða sem tengjast vinnu.
Hvað er í deiglunni: Stend á þessum blessuðu tímamótum. Ferðaþjónustan hrunin vegna Corona-vírus svo nú liggja leiðir til allra átta og eitthvað verulega spennandi mun gerast.

Rabbið:

Hvernig nemandi varstu? Slark fær, fylgdist með en náði illa að halda athygli, hugurinn alltaf fyrir utann skólann, þetta slapp til.

Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Stóra gjöfin, hestur með öllum reiðtygjum.

Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Sjómaður og það tókst, bæði að verða stór og fór á sjóinn mjög ungur. Annars hefur alltaf blundað í mér þessi þrá að ferðast um hálendið og okkar einstöku náttúru. Það fæ ég væntanlega frá henni ömmu minni á Hólmagrundinni, henni Fjólu Ágústsdóttur. Hún ferðaðist mikið og tók okkur krakkana með.

Hvert var uppáhalds leikfangið þitt þegar þú varst krakki? Bílar og veiðistangir.

Besti ilmurinn? Ný slegið gras í sveitunum.

Hvar og hvenær sástu núverandi maka þinn fyrst? 1986. Önnur hæðin í Þýskalandi [við Kirkjutorgið á Króknum]. Þar leigði hún og sonur henna herbergi og ég var á þriðju hæðinni. Þarna hittumst við í fyrsta sinn, ég að koma af sjónum (trillukall), haugdrullugur og illa lyktandi. Hvað hún sá við þennan 202 sm slána er mér enn hulinn ráðgáta. Síðan eru liðinn 34 ár.

Hvað varstu að hlusta á þegar þú fékkst bílprófið? Ég er frekar opinn fyrir tónlist. Á þessum árum var allt rokk, helst þungt, í spilaranum. AC/DC, Nazaret og slíkar grúbbur og svo að sjálfsögðu íslensk dægurlagatónlist – það sem maður getur sungið með.

Hvernig slakarðu á? Í útilegu með fjölskyldu og vinum, helst á fjöllum eins langt frá öllum skarkala lífsins eins og hægt er að komast.

Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? Allt sem viðkemur körfubolta.

Besta bíómyndin? Jamse Bond 007. Þarfnast ekki frekari útskýringa. „Allir drepnir og leikstjórinn líka,“ sagði afi Steindór.

Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Nr. 42 í LA Lakers. James Worthy. Og Jón Arnór Stefánsson sem og Pétur Guðmundsson. Allt körfuboltamenn sem hafa skarað fram úr á stóra sviði körfuboltans.

Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Að henda í góða veislu með stuttum fyrirvara gerir engin betur en ég á þessu heimili, Svo hef ég geggjaða rýmisgreind svo ég þarf að raða öllum hlutum í sérstakri röð til að auðvelda aðgengi að þeim. Þetta getur farið í taugarnar á mjög svo óskipulögðu fólki, nefni engin nöfn.

Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Lambakjöt og fisk finnst mér skemmtilegast að vinna með. Ég sé nánast alltaf um eldamennskuna þegar einhver veisla er í gangi, enda vann ég sem kokkur til sjós og hef gríðarlega gaman að eldamensku.

Hættulegasta helgarnammið? G&T – slæmt daginn eftir.

Hvernig er eggið best? Á mörkum þess að vera hart og lint.

Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Þegar ég rík upp og rífst og skammast í fólki, þá líður manni oft illa á eftir.

Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? 
Leti og skipulagsleysi.

Hver er elsta minningin sem þú átt? Hólmagrund 7, afi Steindór og pípan. Ég á þessa pípu í dag. Brekkukot í Blönduhlíð, Paradís og minningar sem aldrei gleymast.

Þú vaknar einn morgun í líkama frægrar manneskju og þarft að dúsa þar einn dag. Hver værirðu til í að vera og hvað myndirðu gera? Eiríkur Hilmisson. Fengi að vera lítill fyrir hádegi og hann stór eftir hádegi – fengjum báðir mikið fyrir lítið, vinn vinn fyrir báða. Svo er hann einstakur skemmtikraftur.

Hver er uppáhalds bókin þín og/eða rithöfundur? Útkalls-bækurnar eftir Óttar Sveins, þær lýsa raunverulegum atburðum, sjóslysum og björgunum, atburðum til jökla og fjalla. Einstaklega vel unnar frásagnir og oft erfitt að lesa því þetta stendur mann nær en maður heldur.

Orð eða frasi sem þú notar of mikið? Þetta hefst.

Hvaða þremur persónum vildirðu bjóða í draumakvöldverð?

Siggu Kára, Sossu Kára og Herdísi Kára. Þetta eru systur mínar og ég bara þori ekki að nefna neina aðra.

Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færirðu? Ekkert. Ég myndi ekki vilja breyta neinu, ég hef það eins og ég á skilið, Gott.

Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Þetta hefst.

Framlenging: 

Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu...
 til Chile Patagonia, algjör paradís veiðimanna.

Bucket list spurningin: Nefndu eitthvað þrennt sem þér finnst þú mega til að gera áður en þú gefur upp öndina: Gera Tindastól að Íslandsmeisturum í körfubolta. Eignast hús á friðsælum stað í Skagafirði. Veiða og spila golf miklu meira en ég geri í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir