Rabb-a-babb 252: Anna Guðrún
Við finnum Rabbara vikunnar í Eyjafirði en það er Anna Guðrún Grétarsdóttir sem svarar að þessu sinni. Hún er fædd á því fína ári 1970, er í sambúð með Arnari Sigfússyni og eiga þau tvo syni, Auðunn Orra 27 ára og Ævar Ottó 20 ára. Hún er dóttir Grétars Geirssonar og Jónínu Hjaltadóttur og er alin upp austan Vatna í Skagafirðinum en býr nú í Fornhaga II í Hörgárdal með sínum manni, örfáum kindum og nokkrum hrossum.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Spennandi tímar framundan hjá Valdísi
Það hefur mögulega ekki farið framhjá þeim sem sitja langdvölum með símann í höndunum og skrolla sér til skemmtunar í gegnum Spotify og Instagram að VALDÍS er að gefa út ný lög. Valdís er 26 ára gömul söngkona frá Sauðárkróki, dóttir Önnu Sigríðar Stefánsdóttur og Valbjörns Geirmundssonar, og hefur verið á kafi í tónlist frá unga aldri. Fyrir utan tónlistina þá á hún og rekur Snyrtistofu Valdísar sem er staðsett í Villunni á Hólaveginum á Króknum.Meira -
Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… | Sigríður Framdalz Ólafsdóttir skrifar
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 25.10.2026 kl. 10.52 oli@feykir.is… varð mér á orði í gær eftir að hafa fyllt bílinn minn af eldsneyti. Eldsneyti sem er á innan við ári komið upp í sama verð og það var á þegar eldsneytisgjöld voru inni í verðinu. Núna borga ég sem sagt sama verð og áður, þökk sé meðal annars hækkun kolefnisgjalds, og svo greiði ég áætlað kílómetragjald einu sinni í mánuði til viðbótar.Meira -
Raggi í syngjandi sveiflu gegn Sindra
Tindastólsmenn héldu í suðaustur frá Skagafirði í gær en liðið mætti nýliðum Sindra á Höfn í fyrsta sinn í efstu deild körfunnar í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta sinn sem Hornfirðingar eiga lið í efstu deild og þeir sýndu að þeir geta vel bitið frá sér því Stólarnir lentu í basli. Heimamenn leiddu með einu stigi fyrir lokafjórðunginn en Stólarnir voru grimmir á lokakaflanum, skelltu í lás í vörn og fráköstuðu af miklum móð og unnu leikinn 71-78.Meira -
Tengill styrkir stöðu sína á Eyjafjarðarsvæðinu
Tengill hefur keypt Ljósgjafann á Akureyri. Frá þessu segir á Akureyri.net en þar staðfestir Gísli Sigurðsson framkvæmdastjóri Tengils kaupin en tekur fram að viðskiptin hafi verið send til umsagnar hjá Samkeppniseftirlitinu, sem þarf að staðfesta kaupin. Á heimasíðu Ljósgjafana segir að Ljósgjafinn ehf. búi yfir áratuga reynslu í öllu því sem snýr að rafmagni og raftæknibúnaði og þjónusti bæði fyrirtæki og einstaklinga á Eyjafjarðarsvæðinu af metnaði og alúð.Meira -
Ég myndi keppa við Indriða afa í spretthlaupi
Íþróttagarpur í síðasta tölublaði Feykis var Herdís Erla Elvarsdóttir sem verður 14 ára 29. desember n.k. og er búsett á Hvammstanga. Hestamennskugen standa að Herdísi í báðar ættir en foreldrar hennar eru Fanney Dögg Indriðadóttir frá Grafarkoti í vestur Hún. og Elvar Logi Friðriksson frá Varmalæk í Skagafirði. Herdís Erla hefur því alist upp með hestum og er núna farin að láta að sér kveða á keppnisvellinum.Meira
