rabb-a-babb 26: Eiki Hilmis

Nafn:  Eiríkur Hilmisson.
Árgangur:  1963.
Fjölskylduhagir:  Giftur fimm barna faðir.
Starf / nám: Hljóðmaður / Fjölbraut.

Hestöfl: Já.
Hvað er í deiglunni: (Fara á sjóinn) þarf að ath.

Hvernig hefurðu það? 
Mjög gott.
Hvernig nemandi varstu? 
Mjög góður.
Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? 
Bíóferðin.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? 
Sýnilegur.
Hvað hræðistu mest? 
Hunda.
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir (eða besta)? 
Dark Side Of The Moon.
Hvaða lag ertu líklegastur til að syngja í Kareókí?
 Fale rí fale ra.
Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)? 
Dagskrálokum.
Besta bíómyndin?  
Kúrekar Norðursins.
Bruce Willis eða George Clooney / Angelina Jolie eða Gwyneth Paltrow? 
Angelina Jolie og Angelina Jolie.
Hvað fer helst í innkaupakörfuna sem ekki er skrifað á tossamiðann?
 Pilsner.
Hvað er í morgunmatinn? 
Herbalife.
Uppáhalds málsháttur? 
Margur er knár þótt hann sé smár.
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar mest til þín? 
Línan.
Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu?  
Kveikja á útvarpinu (kvöldfréttir).
Hver er uppáhalds bókin þín?  
Alfinnur álfakongur.
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu... 
...til Tíbet
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? 
Jákvæðni oft komið mér í vandræði.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra?  
Neikvæðni.
Enski boltinn - hvaða lið og af hverju?  
Arsenal - unnu tvöfalt 71 minnir mig.
Hvaða íþróttamanni / dómara hefurðu mestar mætur á? 
Alla Munda / Pálma Sighvats.
Heim í Búðardal eða Diskó Friskó?  
Heim í Búðardal (Hannes).
Hver var mikilvægasta persóna 20. aldarinnar að þínu mati?
Lennon.
Ef þú ættir að dvelja aleinn á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér?  
Hljóðfæri, Band, hlutabréf.
Hvað er skagfirskt?  
Standa inn á karlaklósetti í Miðgarði í hóp með öðurum köllum og öskra eins og maður getur eldrauður í framan komin með utanáliggjand æðakerfi af söng átökum í þeim furðulega tilgangi að einhverjar konur heyri í manni (rangt staðarval).
Kanntu góðann trommarabrandara? 
Hvað svo á ég að klappa?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir