Allt að komast í jólagírinn
Í morgun fór fram hin árlega friðarganga Árskóla á Sauðárkróki þar sem nemendur og kennarar mynduðu mannlega keðju upp Kirkjustíginn. Friðarljós er látið ganga á milli nemenda sem að endingu nær upp að krossi sem þá upplýsist. Á morgun verða svo jólaljósin tendruð á jólatrénu á Kirkjutorgi á Sauðárkróki og hefst sú athöfn klukkan 15:30.
Það var ágætis veður er friðargangan fór fram, sunnan andvari og nokkrar gráður í plús. Hlákan undanfarna daga hefur skolað snjónum burt sem hafði fyrir því að falla til jarðar fyrir nokkru og gerði umhverfið dimmara en ella. En athöfnin og hugurinn að baki er það sem lýsir skammdegið upp og er að margra mati upphaf aðventunnar á Króknum. Að athöfn lokinni var boðið upp á kakó og piparkökur á skólalóðinni.
Jólaljósin á jólatrénu á Kirkjutorgi verða tendruð á morgun laugardag og hefst sú athöfn klukkan 15:30 en þar mun ýmislegt verða til skemmtunar. M.a. mun barnakór Sauðárkrókskirkju koma fram, Þórgunnur Þórarinsdóttir og Anna Karen Hjartardóttir ætla að stíga á stokk og syngja sem og þau Fúsi Ben og Vordísin.
Hátíðarávarp flytur Sigríður Svavarsdóttir forseti sveitarstjórnar og nemendur 2. bekkjar Grunnskólans austan vatna tendra ljósin á trénu sem er gjöf frá Kongsberg í Noregi, vinabæ Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Að sjálfsögðu taka svo jólasveinar forskot á sæluna og mæta á svæðið.