Áramótaveðrið
Það má öruggt teljast að veður verði eins og best verður á kosið í kvöld þegar landsmenn kveðja árið og taka á móti því nýja með tilheyrandi sprengingum og ljósagangi.
Á vef Veðurstofunnar segir að í dag megi gera ráð fyrir breytilegri átt, 3-8 metrum á sekúndu og að þurrt verði síðdegis. Frostið verður á bilinu 3 til 14 stig og kaldast í innsveitum. Það mætti nú eiginlega kalla hálfgerða hitabylgju miðað við hitafarið sem verið hefur undanfarna daga.
Fyrstu dagana á nýju ári verður svo nokkuð meinleysislegt tíðarfar. Á nýársdag er reiknað með fremur hægri norðaustlægri eða breytilegri átt á landinu , bjart að mestu en þó dálítil él við norðaustur- og austurströndina. Kalt verður áfram í veðri, einkum inn til landsins. Á þriðjudag verður vaxandi austanátt, 10-18 metrar á sekúndu um kvöldið, hvassast allra syðst. Það mun þykkna upp með éljum um landið austanvert, en lengst af verður bjart vestanlands. Útlit er fyrir að dragi úr frosti og hláni sums staðar við sjávarsíðuna þegar líður á daginn.