Áróra Rós hlaut milljón úr Vísindasjóði Landspítala

Frá afhendingu styrkjanna. Áróra Rós er þriðja frá hægri í aftari röð. Mynd: landspitali.is
Frá afhendingu styrkjanna. Áróra Rós er þriðja frá hægri í aftari röð. Mynd: landspitali.is

Tíu styrkir til klínískra rannsókna ungra vísindamanna á Landspítala voru afhentir úr vísindasjóði hans fimmtudaginn 15. desember sl. í Hringsal stofnunarinnar. Styrkþegarnir gerðu grein fyrir rannsóknum sínum en hver styrkur nemur einni milljón króna. Meðal styrkþegar var Skagfirðingurinn Áróra Rós Ingadóttir næringarfræðingur.

Styrkinn fékk Áróra fyrir rannsóknir sem hún vinnur að í doktorsnámi sínu við Háskóla Íslands. Þar er hún meðal annars að skoða áhrif næringardrykkja í samanburði við orku og próteinríkar millimáltíðir hjá vannærðum sjúklingum með langvinna lungnateppu.

„Langvinn lungnateppa er ein af helstu dánarorsökum í heiminum og vannæring er algeng meðal þessara sjúklinga. Næringardrykkir eru almennt notaðir í næringarmeðferð hjá þessum sjúklingum og sýna jákvæð áhrif á ýmsar útkomur t.d. þyngdaraukningu. Hinsvegar hefur ekki verið skoðað áður hvort sömu áhrif megi fá með notkun á hefðbundnum mat sem er ódýrari meðferð,“ segir Áróra. Á næsta ári mun hún taka sér leyfi frá vinnu til þess að geta unnið betur að þessum rannsóknum en hún starfar sem næringarfræðingur á Landspítalanum. Hún segir að styrkurinn verði því notaður sem laun.

Áróra hefur áður hlotið styrki úr Vísindasjóði Landspítala sem hún hefur m.a notað í kostnað vegna millibitanna. Einnig er hún á stórum styrk frá Rannís.

Fleiri fréttir