Bingó í kvöld
Ferðastúdentar við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra verða með Bingó í kvöld í sal bóknámshússins á Sauðárkróki. Spjaldið kostar 500,- krónur og hefst kúludrátturinn kl 20:00.
Stefnt er á útskriftarferð til Magaluf á spánsku eyjunni Majorka næsta vor og að sögn Rakel Jönu Arnfjörð sem situr í stjórn ferðastúdenta vonast þau eftir fullu húsi í kvöld. Hún segir ferðastúdentana hafa verið í fjáröflun í vetur og selt WC pappír og lakkrís og hlaup. Eftir áramót verða þau með happdrættismiða og ís til sölu ásamt öðrum skemmtilegum vörum.