Brandugluungar í Lýdó
feykir.is
Skagafjörður
02.07.2010
kl. 08.54
Eyjólfur Þórarinsson á Stoð var í vikunni á ferð um Lýtingsstaðahrepp og rakst þá á þessu gull fallegu uglubörn en um Brandugluunga mun vera að ræða. Um síðustu helgi sá blaðamaður Feykis tignarlega Branduglu veiða sér til matar í Óslandshlíð. 
Fleiri fréttir
-
Skagavegur milli Harrastaða og Brunanáma kominn í útboð
Vegagerðin hefur boðið út ný- og endurbyggingu Skagavegar á um 7 km kafla auk nýbyggingar á um 0,7 km kafla á Brekknavegi. Um er að ræða endurbyggingu núverandi vegar að mestu leiti fyrir utan færslu á veglínu, um 500 m. norðan við bæinn Hof. Einnig felst í verkinu færsla tengingar Brekknavegar (7425) og nýbygging hans á um 700 m kafla.Meira -
Rabb-a-babb 244: Soffía Einars
Það er Króksarinn Soffía Einarsdóttir sem svarar fyrsta Rabbi ársins í Feyki. Hún er af ´68 árganginum, alin upp á Bárustígnum en foreldrar hennar Einar Helga og Brynja Jósefs. Nú býr Soffía í Skerjafirðinum í Reykjavík og er í sambúð með Sigurði Áss Grétarssyni. „Ég á tvo drengi fædda 1996 og 2002 og sex stjúpbörn. Fimm þeirra á sambýlismaður minn og svo á ég eina stjúpdóttur af fyrra sambandi.“ Hún er kennari í grunninn með B.ed gráðu. „Sérnám eftir kennaranámið er náms- og starfsráðgjöf sem ég tók í HÍ og starfa sem sérfræðingur við ráðgjöf í starfsendurhæfingu hjá Virk í VR.“Meira -
Samið um for- og verkhönnun Fljótaganga
Vegagerðin og COWI Ísland undirrituðu miðvikudaginn 28. janúar samning um for- og verkhönnun Fljótaganga, vegagerðar á Siglufjarðarvegi milli Stafár í Fljótum og tengingu við núverandi Siglufjarðarveg í botni Siglufjarðar. For- og verkhönnun skal að fullu lokið í nóvember 2026.Meira -
Eins og ein stór fjölskylda
Kvennalið Tindastóls er nú á öðru ári sínu í Bónus deildinni en Tindastóll hafði ekki átt lið í efstu deild kvennaboltans frá því um aldamót. Það var góðkunningi körfuboltans á Króknum, Israel Martín, sem var kallaður til og fenginn til að taka við þjálfun liðsins af Helga Frey Margeirssyni sem hafði náð góðum árangri með liðið tímabilið áður. Sætið í efstu deild kom þó til af því að lið Fjölnis dró lið sitt úr keppni og tækifæri gafst sem körfuknatt-leiksdeild Tindastóls ákvað að grípa. Martín þjálfari fékk fimm erlenda leikmenn til liðs við Tindastól á fyrra tíma-bilinu en skipti þeim öllum út síðastliðið sumar og fékk þá til liðsins fjóra erlenda leikmenn og þar á meðal var hin spænska Marta Hermida sem hefur verið burðarás liðsins í vetur ásamt hinni bandarísku Maddie Sutton.Meira -
Ólöf Ásta lætur af störfum hjá FISK Seafood
Sagt er frá því á heimasíðu FISK Seafood að Ólöf Ásta Jónsdóttir hafi látið af störfum hjá fyrirtækinu nú í vikulokin. „Óla, eins og hún er alltaf kölluð, hóf fyrst störf fjá FISK árið 1993. Hún byrjaði í vinnslunni en hefur starfað sem umsjónarmaður mötuneytis síðan árið 2013 og það er óhætt að segja að hún hafi á vissan hátt haldið starfsemi FISK Seafood uppi í gegnum árin því eins og allir vita gerir maður ekkert svangur,“ segir í tilkynningunni.Meira

