Fannar Freyr Gíslason genginn í raðir ÍA
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
29.01.2010
kl. 08.33
Fannar Freyr Gíslason knattspyrnumaður á Sauðárkróki hefur skrifað undir 3ja ára samning við ÍA og yfirgefur því herbúðir Tindastóls.
Fannar hefur leikið 29 leiki með Tindastóli og skorað 5 mörk. Feykir.is óskar Fannari góðs gengis á nýjum stað.
Áður hafði Arnar Skúli Atlason yfirgefið Tindastól en hann mun spila í Þorlákshöfn næsta sumar.
Fleiri fréttir
-
Viðhaldssvelt Safnahús | Kristín S. Einarsdóttir skrifar
Eitt af því sem hefur heillað mig sem aðfluttur Skagfirðingur er hversu menningin er hér í hávegum höfð. Hér er fjölbreytt úrval menningarviðburða en ekki síður löng og metnaðarfull hefð fyrir varðveislu sagna- og menningararfsins. Það veldur mér því vonbrigðum að fylgjast með hinni neikvæðu umræðu sem spunnist hefur um byggingu fyrirhugaðs Menningarhúss. Húss sem í áratugi hefur staðið til að reisa og hillir nú loks undir að verði að veruleika, með umtalsverðri aðkomu ríkisins.Meira -
Sæluvika Skagfirðinga hefst um næstu helgi
Undirbúningur fyrir Sæluviku Skagfirðinga, hina árlegu lista- og menningarhátíð, stendur nú sem hæst og gengur afar vel. Hátíðin verður haldin dagana 12. til 19. apríl 2026 og stefnir í fjölbreytta og líflega dagskrá líkt og undanfarin ár, að sögn Maríu Neves verkefnastjóra hjá Skagafirði. Setningarhátíð Sæluviku fer fram sunnudaginn 12. apríl klukkan 13:00 í Safnahúsinu á Sauðárkróki, eins og venja er. Í beinu framhaldi verður opnuð sýning í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá fæðingu rithöfundarins Indriða G. Þorsteinssonar.Meira -
Næturlokanir í Hvalfjarðargöngum í apríl og maí
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 07.04.2026 kl. 09.26 oli@feykir.isÍ kvöld hefjast framkvæmdir í Hvalfarjarðargöngum vegna endurnýjunar á lýsingu í göngunum. Verður göngunum lokað kl. 21:30 og til kl. 6:00 að morgni alla virka daga (frá mánudegi til föstudags) en áætlað er að framkvæmdum ljúki 29. maí.Meira -
Slys á Almenningum 1935 | Sögumolar Hjalta Pálssonar
Nú eru 90 ár liðin frá hörmulegum slysförum sem urðu í landi Hrauna í Fljótum hinn 4. nóvember 1935 þegar þrír ungir menn og frískir urðu úti við fjárleitir á Almenningum á leið út að Máná á Úlfsdölum. Þeir lögðu af stað frá Máná inn á Almenn-inga mánudagsmorguninn 4. nóvember. Komu þeir eftir hádegi inn í Hraun og höfðu þar skamma viðdvöl en fóru aftur áleiðis heim um tvöleytið. Litlu síðar brast á ægiveður af norðaustri með krapahríð og varð veðurhæð mikil um Úlfsdali og Almenninga.Meira -
„Ægilega vandræðalegt að labba inn kirkjugólfið“
Kristín Birgisdóttir er frá Kornsá í Vatnsdal en býr núna á Blönduósi. Kristín er í sambandi og á eina sex ára skottu. Hún vinnur sem aðstoðarleikskólastjóri í Leikskóla Húnabyggðar, svo mætti líka kalla það vinnu að ala upp barn og mann. Hún rifjaði upp fermingardaginn í FermingarFeyki en Kristíns fermdist frá Undirfellskirkju 19. apríl 1998.Meira
